Leita í fréttum mbl.is

Svefnsiðir

 840H

Nei, nei, nei, perrarnir ykkar, ekki svefnherbergissiðir, svefnsiðir!  Leikfimisæfingar í hjónaherberginu koma síðar.  Þarf að tala betur við spólgr... vinkonu mína um þau mál (þú veist hver þú ert skömmin þín).

En aftur í alvöruna.

Það virðast flestir vera með rosaleg ritúöl í sambandi við svefn.  Fyrir nú utan hversu margir tala sífellt um svefn og svefnleysi.  Ég ætla ekki að fara út í draumana sem fólk er að neyða upp á mann, ég urlast upp.  Æi þið vitið ég var á Manhattan en samt á Laugavegi og ég var með manninum mínum sem var samt ekki maðurinn minn heldur Obama í draumnum.  Þið kannist við hryllinginn.

Ég t.d. verð að hafa opna glugga og skrúfað fyrir ofninn.  Annars get ég ekki sofið.  Líka í mestu vetrarhörkunum vil ég hafa þetta svona, það er svo notalegt að bora sér undir sængina.  Hvað með það að  maður verði smá rauður á nefinu, hefur fólk aldrei heyrt talað um nefhlífar?  En auðvitað vill minn heittelskaði hafa pínulitla súrefnisrifu á glugga og ofna í botni, nema rétt yfir hásumarið.  Eini óheiðarleikinn í mínu hjónabandi eru lygarnar og hysknin sem ég beit þessa elsku og hann mig, þegar við skrúfum fyrir og frá, opnum og lokum út í eitt.

Ég átti gamla frænku sem er dáin.  Merkilegt nokk þá dó hún úr svefnleysi en hún svaf alltaf með nátthúfu og trefil.  Blessuð sé minning hennar.

Þulan sem við húsband förum með yfir hvort öðru fyrir svefn er afskaplega þráhyggjukennd en ég ætla ekki að fara með hana fyrir ykkur.  Þið mynduð halda að ég væri geggjaðri en ég í rauninni er.

En Jóna systir mín á krúttlegasta ritúalið sem ég hef heyrt um (held þó að hún sé búin að droppa því núna).  Þegar hún var bara ponsa þá urðu síðustu orð dagsins að vera "góða nótt mamma".  Þetta fékk á sig skemmtilegar myndir.

Jóna: Góða nótt mamma.

Mamma: Góða nótt og ertu búin að fara með bænirnar?

Jóna: Já, góða nótt mamma.  En heyrðu villtu vekja mig kl. 07? Góða nótt mamma.

Mamma: Já elskan.

Jóna: Ekki gleyma. Góða nótt mamma.

Greta: Hættu þessu.

Jóna: Þegiðu.  Góða nótt mamma.

Og svona gekk þetta þangað til móðirin á heimilinu var komin í keng.

Æi annars þekki ég svo mikið af sérvitringum með undarlegar svefnvenjur að þegar ég byrjaði að skrifa bloggfærsluna virkaði það töff hugmynd að skrá það hér svo aðrir gætu notið þess með mér, en af því að mér þykir vænt um fólkið mitt þá fer ég ekkert út í þá sálma.  I could tell you stories.

En hvað er maður án fjölskyldu og vina?

Farin að skrúfa fyrir ofninn.

Það er púki í mér í dag.

Lílíló.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

það er nú eitthvað nýtt væna mín að það sé púki í þér. sei sei já. Hver er þessi vinkona þín? júnó þessi spólgr..?

ég skellti upp úr vegna Jónu systur. Þetta fylgir nafninu. Geðveikin og skemmtilegheitin.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2008 kl. 13:04

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóna:

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2008 kl. 13:17

3 Smámynd: María Guðmundsdóttir

gud hvad ég er sammála med drauma sem er verid ad neyda uppá mann satt ad segja tholi ekki søgur af "mig dreymdi i nótt" og thad sem er hægt ad fara úti smáatridi á einhverju sem skedi ekki einu sinni!

Frábært med Jónu systur

María Guðmundsdóttir, 30.6.2008 kl. 14:44

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Draumar? Er ekki nóg að hafa dagdrauma?

Ég er líka ægilega forvitin eins og Jóna, hver er þessi spólgr...?

Edda Agnarsdóttir, 30.6.2008 kl. 15:13

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ekkert jafnspennandi og frásagnir af draumum annars fólks ... NOT.

Helga Magnúsdóttir, 30.6.2008 kl. 15:30

6 Smámynd: Tína

Er ekki alltaf einhver púki í þér Jenný mín?

Eigðu ljúfan dag elskan.

Tína, 30.6.2008 kl. 17:14

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Bíddu... dó gamla frænka þín úr svefnleysi ?

Jónína Dúadóttir, 30.6.2008 kl. 17:53

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jónína: Muhahahaha, nei auðvitað ekki, er að fíflast.

Tína: Jú nánast alltaf ´sskan.

Helga: Skelfilegt að lenda í að láta segja sér drauma.  OMG

Edda: 10 vinkonur mínar hafa hringt hér í dag og heimtað að fá að vera hún þessi gr.  What can I say? Margir kallaðir fáir útvaldir.

María: Jóna systir mín er eðalkrútt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2008 kl. 18:13

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

...er í kasti hérna

þú ert frábær

Marta B Helgadóttir, 30.6.2008 kl. 22:30

10 identicon

hver sagði þér.........nei smá djók, alltaf svo gaman að lesa þig. Við sofum við sömu aðstæður, ætli ég búi ein vegna þeirra? Hvernig fórstu að þessu, ég rek alla úr mínu rúmi með þessu framferði mínu með opnu gluggana og fyrirskrúfaða ofninn? En ég sef vel með súrefnismettað andrúmsloft og hlýju undir sænginni,

Rut

rut sumarliðadóttir (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband