Leita í fréttum mbl.is

Unaðslegur skilnaður

 DivorceCake

Það er varla að ég þori að blogga um þetta frábæra framtak Dana í skilnaðarmálum.

En það er vegna þess að sumir sem lesa bloggið mitt hafa ekki húmor fyrir viðhorfum mínum til allra minna fyrri hjónabanda og skilja ekki að ég er að grínast með málefnið. Skil ekki afhverju sumir vaða stöðugt inn á síður sem fara í taugarnar á þeim. 

En auðvitað þori ég, bara smá fokk hérna í morgunsárið fyrir alla þessa húmorslausu sem vaða í gegnum lífið eins og hertir handavinnupokar og skilja eftir sporin sín í athugasemdakerfum heimsins. 

Mér finnst þetta svo krúttlegt framtak hjá þeim í Danmörku, þ.e. að nú er hægt að fá kirkjulega afvígslu eða skilnaðarathöfn.

Ég sé alveg fyrir mér hjónin ganga eftir kirkjugólfin með erfingjana í einni sorgarbunu á eftir sér, ganga upp að altarinu, skiptast á hringum, eða réttara sagt skila þeim, kýla eða sparka hvor í annað, en auðvitað bara laust, svona sýmbólskt, og vaða svo frjáls út úr kirkjunni með börnin.

Svo má taka þetta aðeins lengra.  Það má efna til veislu þar sem uppboð verður haldið á brúðargjöfunum, borðað og drukkið, farið á trúnó, grátið smá og svo fara allir til síns heima voða glaðir.

Það gæti jafnvel endað með sögulegum sættum hjá pari dagsins, hver veit.

Um að gera að poppa svolítið upp skilnaði.  Nú mér hefur alltaf fundist jarðarfarir í daufari kantinum, Danirnir ríða kannski á vaðið og djassa þær örlítið til líka.

Eftir mína skilnaði þá hef ég nú yfirleitt farið á kaffihús, sko með vinkonum, nú eða næsta tilvonandi eiginmanniDevil

Dem, það væri hægt að slá skilnaðar- og giftingarathöfn saman í eitt.

Og nú set ég upp hauspoka.

Farin með veggjum og úje.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir geggjaðan húmor.  Þú ert æðisleg.

Bryndís Júlíusdóttir (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 10:25

2 identicon

Ég skil, sagði maðurinn og fór til prestsins. (þýðing á : I see said the blind man)

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 10:27

3 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta er flott hjá Dönunum. Ég hef aldrei getað skilið hvers vegna ég, sem giftist hjá borgardómara, þurfti að fá plagg hjá presti til að losna úr mínu borgaralega hjónabandi. Mér finnst því að þessu megi fylgja að prestinum sé sleppt í skilnaðarferlinu.

Helga Magnúsdóttir, 30.6.2008 kl. 11:23

4 Smámynd: Hulla Dan

Þú ert dásemd

Hulla Dan, 30.6.2008 kl. 11:31

5 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 frábær hugmynd. Skilnadarveisla...hahaha..og svo kýlum vid og spørkum adeins i hvort annad..hahaha thú ert geggjud og thad á gódan máta...i like it

María Guðmundsdóttir, 30.6.2008 kl. 11:42

6 Smámynd: Lindan

Bwahaha ótrúlega fyndin.

Ég man eftir skemmtiþætti sem sýndur var nítjánhundruð áttatíuogeitthvað...  Laddi lék fullan prest sem var að gifta og áður en þau gengu út úr kirkjunni bauð hann þeim að borga strax inn á skilnaðinn og fá þá 10 % afsl.  Algjör snilld.

Lindan, 30.6.2008 kl. 11:52

7 Smámynd: Eyrún Gísladóttir

Það er nú bara gott mál að hafa húmor fyrir sjálfum sér og hvað með það þó maður skilji nokkrum sinnum yfir ævina bara að maður sé happy í núinu vera ekki að súta fortíðina fjölbreytileikin alltaf góður hehe.

Eyrún Gísladóttir, 30.6.2008 kl. 12:01

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þakka ykkur.  Hahaha, er í kasti hérna.

Pælið í hugmyndaaugðginni.  Skilnaðarathöfn verður haldin í Laugarneskirkju sunnudaginn 12.4.2008.  Við bjóðum vinum og fjöslkyldu að gleðjast með okkur af tilefninu.  Gjafalistar fyrirliggjandi í sóandsó.

Lalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2008 kl. 12:58

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 30.6.2008 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 2985731

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband