Leita í fréttum mbl.is

Helvítis hámark hamingjunnar

camping

Nú ríða þeir yfir hver af öðrum íslensku fyllerísdagarnir víða um landið.

Hamingjudagar, Bíladagar, Humardagar (hátíð), Þjóðhátíðardagar, og hvað þetta heitir allt saman. 

Fyrir utan Fiskidaginn mikla á Dalvík, þar sem fólk borðar aðallega sér til skemmtunar þá eru þetta martraðardagar og sviðsetningar fyrir fyllerí.

Það hlýtur að vera séríslenskt fyrirbrigði, án þess að ég viti það, að fullorðnir og börn safnist saman til að höndla hamingjuna sem oftast er keypt í ríkinu og kemur í fljótandi formi.

Ég efast ekki um að stór hluti fólks, vonandi fjölskyldufólk, fer með því hugarfari að eiga góðar stundir úti í náttúrunni og ladídadída.

En hvernig væri að fullorðnast? Maður fer ekki í afneituninni með börnin sín í tjald á svona samkomur.  Það er ekki raunhæft að búast við eðlilegum samverustundum fólks við þær aðstæður.  Það hefur reyndar aldrei verið þannig nema að það sé hátíð á vegum bindindismanna eða SÁÁ.

Þegar ég ferðist um landið með stelpurnar mínar litlar, og ég gerði töluvert af því, þá forðaðist ég svona uppákomur eins og heitan eldinn.  Mig langaði ekki baun að kynna þær fyrir íslenskri fylleríis tjaldmenningu og ræna þær í leiðinni gleðinni sem felst í því að ferðast um landið.

Það er lágmarks sjarmerandi að horfa á fólk á öllum aldri vaðandi um í sumarnóttunni, röflandi, dettandi, ælandi og berjandi.  En fyrir marga er þetta fjandans hámark hamingjunnar.

Ég held að fjölskyldufólk ætti að forðast alla "dagana" sem eru framundan á þessu sumri.  Þ.e. ef það vill ekki taka þátt í ruglinu og bjóða börnunum sínum upp á þá andlegu vanlíðan sem fest í því að horfa á fullorðið fólk á öllum aldri í annarlegu ástandi gera sig að fíflum.


mbl.is „Óhamingja“ á Hólmavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Eins og talað út úr mínu hjarta....

Íslendingar eru snillingar að búa sér til ástæður til að "gleðjast" og geta svallað undir einhverjum formerkjum....ábyrgðarlaust....

Skil ekki þessa endalausu "svona og hinsegin" daga.....

Bergljót Hreinsdóttir, 29.6.2008 kl. 11:30

2 Smámynd: Hulla Dan

Og enn og aftur er ég fullkomlega sammála þér.
Svo margt skemmtilegt hægt að gera með börnunum sínum.
Tel það ekki skemmtun að fara með ungana sína á fylleríssamkomur. Eigðu góðan dag.

Hulla Dan, 29.6.2008 kl. 11:36

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

100% rétt hjá þér. Allar þessar ,,fjölskylduferðir" Lions og Kiwanis og Oddfelló og hvað þetta heitir eru ekki við hæfi barna og hananú! Tók sjálf þátt í þessari vitleysu í den, en sem betur fer sá ég ,,ljósið" eða börnin mín bentu mér eiginlega á það.

Hef oft hugsað hvað fólkið ætlar að gera ef eitthvað barnið (eða fullorðinn slasar sig)  og allur mannskapurinn er fullur eða rallhálfur. 

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 29.6.2008 kl. 11:44

4 Smámynd: Gunna, Dagný og Erna

Vá hvað ég er sammála þér og þeim sem kvitta hér að ofan. Íslendingar halda alltaf að þeir séu að missa af einhverju þess vegna mætir fjöldinn allur á þessar hátíðir sem eru haldnar um landið.

Gunna, Dagný og Erna, 29.6.2008 kl. 11:50

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þegar ég var ca. 16 ára fór ég í Húsafell um Verslunarmannahelgi með einhverjum vinum mínum. Mér ofbauð svo það sem ég sá þar að ég fór ein heim á puttanum daginn eftir og hét því að fara aldrei framar á svona samkomur. Ég hef staðið við það og forðast alla "daga" eða hvað þetta er nú allt kallað.

Eflaust eru ótalmargir sem haga sér skikkanlega á þessum "dögum", en það ber því miður meira á hinum.

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.6.2008 kl. 12:31

6 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Íþróttahreyfingin hefur haft á sér gott orð fyrir að vera besta og umfangsmesta forvarnastarfið á landinu. Elstu og mestu fylleríssamkomurnar  hafa ætíð verið sponseraðar af þeim. Nærtækasta dæmið er Þjóðhátíðin í eyjum. Hvar væri íþróttahreyfingin þar stödd ef hún missti þá spón úr sínum aski?

Svanur Gísli Þorkelsson, 29.6.2008 kl. 12:54

7 identicon

Sammála !

Kveðja af hinu bláa hafi.

Einar Örn Einarsson (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 12:59

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Svanur: Hún væri með mun heilbrigðari lífsýn og það skilar asskoti miklu til æskunnar.

Hallgerður: Oj.

Keli: Þú mátt náðarsamlegast segja skoðun þína.  Híhí.

Lára Hanna: Ég hef sagt það áður en við erum andlega skyldar.  Fór 16 ára í Þórsmörk og fór heim á puttanum daginn eftir af sömu ástæðu og þú.

Jóhanna: Það er kominn tími til að tala um það sem ekki má, en það er sú auma staðreynd að líf margra barna á Íslandi er eitt helvíti vegna drykkjuskapar foreldranna og aldrei verður þetta sýnilegra en á sumrin í grillæðinu.

Takk öll fyrir innlegg.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2008 kl. 13:01

9 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég er ein af þeim sem fór einu sinni á útihátíð 16 ára og á puttanum heim daginn eftir, ég var bara hrædd við þetta allt saman..... Fór aldrei aftur og börnin mín hafa aldrei farið heldur. Góður og þarfur pistill

Jónína Dúadóttir, 29.6.2008 kl. 13:26

10 identicon

Gæti ekki verið meira sammála - Ég held að ég hafi farið á þrjár eða fjórar svona útihátíðir og það var eitthvað allt annað en mannbætandi andrúmsloft á þeim öllum. Maður þurfti að hafa sig allan við að sleppa óskaddaður frá alls kyns útúrdrukknu liði sem engan veginn gat leyft manni að njóta t.d. skemmtiaðtriða í friði.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 13:48

11 identicon

Ég bý á Hólmavík og tók þátt í Hamingjudögunum og það sem skrifað er um Hamingjudaga er bara rugl. Þetta var ekkert slæmt. Fólk var ekki ráfandi ofurölvi og berja mann og annan. Auðvitað eru alltaf einhverjir svartir sauðir sem láta þannig og koma óorði á alla hina. En hamingjudagar eru sko engin fylleríshátíð.

Það er satt um margar svona hátíðir að þær breytast í eitt allsherjar fyllerí. Það er líka sorglegt að fólk skuli fara með börnin sín þangað. Sem betur fer er ég 18 ára dóttir bindindisfólks og ég þakka guði fyrir það. En ég skal segja ykkur það að hamingjudagar eru ekki ein af "þessum hátíðum".

Þorbjörg Matthíasdóttir (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 13:48

12 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Svadalega sammála thessu. Flestar thessara hátída eru eitt helv..svínarí og stranglega bannad innan átján. Fór nú fordum sem unglingur og sumar minningar eru ansi ógedfelldar madur var sjálfsagt litid betri sauddrukkin og allt thad..en ad ég tæki børn/fjølskyldu á svona hátidir,ónei pass betra ad fara á samkomur á vegum SÁÁ eda thviumlikt.

eigdu gódan sunnudag

María Guðmundsdóttir, 29.6.2008 kl. 13:57

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

því miður eru sumir ekki lagnir við að höndla svona hátíðir og það er hópurinn sem er sauðdrukkinn og hugsar illa um börnin sín. Annars sæki ég ekki svona hátiðir og hef aldrei gert svo ég má kannski ekki dæma eingöngu af fréttum, en held þó að þetta sé eins og margir segja hér að framan.  Góðan sunnudag Jennslan mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.6.2008 kl. 14:03

14 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég var á svona "útihátíð" um helgina og það sást ekki vín á nokkrum manni!  En það voru flestir í sælu"vímu", því það var svo gaman að hitta æskuvinina

Sigrún Jónsdóttir, 29.6.2008 kl. 14:05

15 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Ölið er bölið ef það er svolgrað of mikið kringum krakkakvölið.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 29.6.2008 kl. 14:19

16 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Sammála.  







Sigurbjörg Sigurðardóttir, 29.6.2008 kl. 14:24

17 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Frábær færsla,gæti ekki verið meiri sammála með þessar endalausu "hátíðir"  Jæja annars ætlar hún Frk.Kata.....náttla skagapía,að skella sér á Írska daga (ástæða skagamanna og fl.fólks til að liggja í því hí,hí),ég fór á Írska daga líka í fyrra en ég dvel bara úti yfir daginn,hitti gamlan skólafélaga síðast sem reyndi að reyna að fá mig á ball með sauðdrukknu fólki,en nei ég læt mér nægja minninguna um sjálfan mig á ömurlega lífskeiðinu mínu.Sko mér er alls ekkert illa við fólk sem drekkur, en mér finnst það bara humm leiðinlegt á meðan + vond vínlyktin

Katrín Ósk Adamsdóttir, 29.6.2008 kl. 14:37

18 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Katrín: Takk fyrir þetta.

Helga Guðrún: Góð

Sigrún: Sæluvíman rúlar.

Ásdís: Þessi hópur sem eyðileggur er alveg nógu stór.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2008 kl. 15:01

19 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þorbjörg: Gott að heyra.

Anna: Sammála.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.6.2008 kl. 15:01

20 identicon

Langar bara að undirstrika orð Þorbjargar hér á undan, þeir fjölmörgu sem ég þekki sem eru á Hólmavík núna hafa ekki orðið varir við neitt af því sem sagt er í fréttinni.

Valur (IP-tala skráð) 29.6.2008 kl. 16:19

21 identicon

Ég vil bara benda á það að þessi frétt  er kjaftæði !! ég var nú sjálf í flestum partýunum og var nú ekkert af okkur "under age" krökkunum að drekka ekki einu sinni aðkomu krakkarnir nema aðal partýdýrin og þá  rákum við þau úr partýunum!

Íbúi á Hólmavík (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband