Leita í fréttum mbl.is

Helvítis ísbjörninn eina ferðina enn - Lúkaaaaas;)

Ég veit ekkert um "markaðinn", skil ekki neitt um fréttir af honum, sölur, kaup, hækkanir, lækkanir eða skortstöður.  Væri flott samt að geta slegið um sig með skortstöðuhugtakinu í partíum en það kemur ekki að sök er hætt að fara í partí, ég er svo brjálæðislega edrú og flott.

En samkvæmt viðtengdri frétt þá er markaðurinn ekkert til að hengja á vegg þessa dagana.  Hann er að drepast úr illgirni helvítið á honum.  Kvikindið gleðst yfir væntanlegum uppsögnum hjá Flugleiðum.  Frusssssss. 

Og það er komið sumar.  Og þá er það ekki veðrið sem lokið hefur upp augum mínum varðandi það mál, ekki almanak Þjóðvinafélagsins heldur.

Það er einfaldlega  kominn nýr Lúkas og nýr LúkasarmorðingiW00t

Þú sem áttir að hafa kviksett hundinn, farðu í felur.  Samkvæmt blogginu þá ertu í stórkostlegri lífshættu mæ men.

Og þið ísbjarnarbloggarar.  Ég bið ykkur bara um eitt.  Ekki skrifa Ísbjarnarblús og Þríbjörn í fyrirsagnirnar ykkar  Maður kemst ekki hjá því að reka augun í þær nefnilega og ég einfaldlega dey ef ég rekst á fleiri slíkar. 

Takið Lúkasinn á ísbjörninn.  Það er þó húmor í því.

Farin út í eitthvað.  Sólbað, göngutúr, sundferð, pikknikk, garðvinnu, tjaldferð, grillveislu.  Notist eftir þörfum.

Bara góð.

Súmítúðetbón.

Úje.


mbl.is Uppsagnir gleðja markaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda litla

Ég geri það, fer út og þríf garðhúsgögnin hjá vinkonu minni. okey bæ

Linda litla, 23.6.2008 kl. 13:06

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takið göngferð og hittið Ísbjörn!

Af hverju heitir enginn maður á íslandi Ísbjörn?

Af hverju er forskeytið bara notað á kvenmannsnöfn?

Ja nema Ísólfur kannski, en það heitir enginn Ólfur!

Nú eru fleiri hundruð manns með magaþínu og uppköst  vegna uppsagna og engin veit neitt! Fyrst fær fólk að vita þetta í fréttum  og svo fara bréfin að hrynja inn um lúgurnar.

Mörg heimili eru í angist vegna þessara frétta og annara uppsagna um þessar mundir. Ótrúlegasta fólki er sagt upp eftir tugi ára í starfi og oft á mjög svo ómanneskjulegan hátt.

Edda Agnarsdóttir, 23.6.2008 kl. 13:09

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Oh, hvað ég er fegin að hafa lesið færsluna þína, því ég var komin á fremsta hlunn með "blúsið" mitt.  Langaði svo að bjóða bjarndýravinum í göngutúr um skagan.

Skelfilegar fréttir af uppsögnum...það er augljóst að "mannauður" er ekki metinn á við "bréfauð" því hlutabréf hækka við þennan gjörning.

Sigrún Jónsdóttir, 23.6.2008 kl. 13:19

4 identicon

Ég mun EKKI blogga um hvítabirni þannig að þér er óhætt að lesa bloggið mitt ----- þ.e.a.s. ef þú þolir að fá meira af færslum frá mér sem fjalla um tuðruspark

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 14:27

5 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Hmm -- ertu viss um að þú sért edrú?

Sigurður Hreiðar, 23.6.2008 kl. 17:27

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna: Búin að kíkja á tuðrubloggið.

Einar: Hehe.

Sigrún: Við þjáumst saman.

Edda: Góð.

Linda: Flott.

Sigurður Hreiðar:  Ertu viss  um að þú sért með fulla fimm?  Vertu úti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.6.2008 kl. 17:32

7 identicon

"Samkvæmt blogginu þá ertu í stórkostlegri lífshættu mæ men."

Það væri nú eitthvað fyrir myndavélarnar ef að moggabloggarar tækju sig saman og færu út eins og óður múgur, næpufölir með kaffibolla og heykvísl og eltu uppi hundaníðinginn.  En við vitum að það gerist aldrei af því að það er mikið öruggara að sitja heima og blogga en að gera eitthvað í málunum.  

Hinn gaurinn (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 17:34

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hinn gaurinn: Ég er búin að leggja heikvíslinni og Moggabloggarar eru ekki einn massi karlinn.  Ég er amk. kúl.

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.6.2008 kl. 17:36

9 identicon

Þú ert æði

Hinn gaurinn (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2985720

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband