Leita í fréttum mbl.is

Krúttfrétt ársins - só far

Þessi frétt er sú krúttlegasta sem af er árinu og fær því Dúlluverðlaun þessa einkafjölmiðils.

Dúllurassgötin í Félagi kaþólskra eru búnir að segja upp viðskiptum sínum við Símann.  Ég gerði það líka en það lágu viðskiptalegar forsendur til grundvallar minni ákvörðun.

En ástæðan fyrir því að Félag kaþólskra leikmenn dissa Símann eru auglýsingarnar með Jóni Gnarr.

Ég sé þetta fólk fyrir mér í geðveiku pirringskasti síðan í vetur, þegar Júdasarauglýsingin var sýnd, alveg urlað í fleiri mánuði og svo flippaði liðið út þegar Galileó auglýsingin birtist núna á dögunum.

Síminn er að hækka afnotagjöldin núna, þegar önnur símafyrirtæki keppast við að lækka.  Síminn hefur aldrei þekkt sinn vitjunartíma. 

Ég verð að játa að auglýsingarnar með Jóni Gnarr, þar sem ekkert er til sparað hljóta að kosta bæði handlegg og fót, pirra mig illa.  Það er greinilega ekki verið að iðka mikla ráðdeild í auglýsingaframleiðslu hjá þessu fyrirtæki. 

Ég persónulega hefði yfirgefið Símann  þegar ógeðisauglýsingin með Merzedes Club var í hverju auglýsingahléi á sjónvarpstöðvunum.  En þá hefði ég gert það vegna hallærislegs músíksmekks fyrirtækisins, en ég var sem betur fer löngu farin yfir til Hive (sorrí Tal).

En þessi fýla kaþólikkana undirstrikar þá trú mína og vissu að það vanti algjörlega húmorinn í vel flest trúarsamtök.  Mússarnir sprengja upp sendiráð af því þeim líkar ekki teiknimyndaserían af Múhamed.  Kaþólikkarnir eru ekki villimenn en þarna liggur sama húmorsleysið til grundvallar fýlunni.

Meiri andskotans vitleysan.

Farið í guðs friði.  AMEN 

 


mbl.is Segja upp viðskiptum við Símann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Verð nú að segja það að þessar auglýsingar fá mig til að hneggja pínu af hlátri og gefa mér þannig gleðilegri dag.

Ég held að guð minn góður sé alveg að sinna mér samt.

Þröstur Unnar, 5.6.2008 kl. 08:55

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ekkert er hafið yfir húmor.  Ég sé ekkert athugavert  við þessar auglýsingar hvað það varðar.  En bruðlið í þeim fer afskaplega í taugarnar á mér. 

Jesú hefur væntanlega verið húmorist, guð hlýtur að vera það, því mér er sagt að við séum sköpuð í hans mynd.

Allir á hnén.  Úje

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.6.2008 kl. 09:03

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég er soldið á sömu línu og Þröstur....... ég flissa að þeim og nú hefur Félag kaþólskra undirstrikað endnu og igen mátt auglýsinga og vekja í leiðinni meiri athygli á þessari tilteknu.  Í staðinn fyrir að dissa bara grínið!

Hrönn Sigurðardóttir, 5.6.2008 kl. 09:07

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Gleymdi einu.

Eru FKL að spila í fyrstu-deild, veistu það?

Þröstur Unnar, 5.6.2008 kl. 09:12

5 identicon

Tek undir með Hrönn, betri kostur að dissa grínið. Aftur á móti er ekkert grín í MC auglýsingunum. Ég lét mig hafa það (en bara einu sinni) að horfa á þetta auglýsingamyndband með MC. Ég þori ekki að skrifa á bloggi það sem mér finnst um meðlimi MC eftir að þessi auglýsing birtist, þau færu örugglega í mál við þig, mig og blog.is.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 09:36

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jón Gnarr er snillingur, en öllu má ofgera.  Sama með Hilmi Snæ, ég er farin að snúa mér undan.  Þetta er ætíð svona, að sama fólkið er notað endalaust.

Anna: Ég er líka hrædd við málsókn vegna MC OMG

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.6.2008 kl. 09:56

7 identicon

hehehehehehe.Ég er trúarspíra.Mér finnst þessar auglýsingar ferlega skemmtilegar.En það er af sérstökum persónulegum ástæðum.GUÐ hefur góðann og mikinn húmor. Það eru mennirnir sem eru svo alvarlegir og viðkvæmir

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 10:31

8 identicon

Sammála henni Birnu. Ég er reyndar ekkert sérstaklega trúaður, en er alveg sammála henni með það að það eru mennirnir sem eru hörundsárir, ekki Guð.

Hins vegar vantaði aðeins meiri blaðamennsku í fréttina.
T.d. hversu margir af þeim eru þegar í viðskiptum við Símann? (Má gera ráð fyrir að helmingur þeirra sé annarsstaðar, sbr markaðshlutdeild Símans?) Eða hvernig þessi tala stenst samanburð við aðra Íslendinga sem yfirgefa Símann þessi dægrin, ég veit um ansi marga sem hafa skipt með GSM til Nova og/eða heimasíma og net til Tal, svo dæmi sé nefnt.

Kristján (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 10:45

9 Smámynd: M

Mér finnst vanta að Hilmar komi nakinn fram í auglýsingunni. 

Góður húmor í þessu, en sammála með bruðlið. 

M, 5.6.2008 kl. 10:58

10 identicon

Æi mér finnst þetta lummó auglýsing. Sammála varðandi bruðlið og svo er komið alveg nóg af Jóni Gnarr í bili! Getur hann ekki látið sér nægja að sitja bakvið borðið í auglýsingum?

Ég verð aðeins að fá að taka upp hanskann fyrir allavega einn meðlim MC. Hann Egill er alveg ótrúlega ljúfur drengur og algjörlega ólíkur þeim karakter sem hann leikur í þessari hljómsveit. Metnaðarfyllri mann í starfi er erfitt að finna! Það má ekki taka þetta grín þeirra í þessari hljómsveit of alvarlega.

Erla (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 11:20

11 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þessi auglýsing var víst tekin erlendis og ekkert til sparað.....bruðl. Humorinn ok.

Hólmdís Hjartardóttir, 5.6.2008 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband