Leita í fréttum mbl.is

Fautavæðing löggunnar

Youtube hlýtur að vera þyrnir í augum ofbeldisseggjanna innan lögreglunnar.

Það er andskotann ekkert hægt að fela lengur.

Mig fýsir að fá útskýringar lögreglunnar á þessu hér:

..jafnvel þó að það sem hér sést sé ekki réttlætanlegt á nokkurn máta, þá efast ég ekki um að þeir muni reyna að normalisera það.

Það má taka fram að ekkert fannst á piltinum á myndbandinu.

En það skiptir ekki öllu, framgangmátinn er ólíðandi.

Hvaða fasismi er í gangi?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Horfði á þetta áðan og er enn ringluð yfir þessu.

Ragnheiður , 27.5.2008 kl. 11:21

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er óhuggulegt svo ekki sé meira sagt.  Hann ræðst að drengnum og tekur hann hálstaki.  Strákur stendur grafkjurr þannig að það er ekki eins og löggan þurfi að verja sig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.5.2008 kl. 11:23

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það þola ekki allir að klæðast uniformi

Hólmdís Hjartardóttir, 27.5.2008 kl. 11:26

4 Smámynd: M

Blöskraði einmitt þegar ég sá þetta og sammála Hólmdísi með uniformið.

M, 27.5.2008 kl. 11:32

5 Smámynd: Garún

Hvað varð um þá list að ræða saman.  Vann einu sinni á bar með dyraverði sem var stoltur yfir því að hafa aldrei þurft að taka á fólki.  Hann talaði bara við þá, sýndi þeim hlýju og ef hann kastaði einhverjum út, þá labbaði hann áleiðis með þeim og gaf þeim svona 5 mínútur í spjall.  Ég var alltaf örugg þegar hann átti vaktina. 

Garún, 27.5.2008 kl. 11:54

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Svo eru menn hissa að virðing fyrir lögreglunni fer hraðminnkandi Það er ekki að heyra á myndbandinu að strákurinn sé með einhver læti, hann segir bara að hann sé með ekkert nema síma í vasanum.

Huld S. Ringsted, 27.5.2008 kl. 12:05

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Árangur af virðingu og hlustun er stórlega vanmetinn.  Skil ekki af hverju maðurinn hoppar á strákinn.  Það er sjáanlega ekkert tilefni til þess.  Engin nauðvörn í gangi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.5.2008 kl. 12:06

8 identicon

Fauta-*væðing*?

Þetta hefur alltaf verið svona! Og þegar menn kvarta, þá er þeim sagt að þeir hafi ekkert að óttast ef þeir hafa ekkert að fela!

Svona virka yfirvöld, hafa aldrei virkað öðruvísi og munu aldrei virka öðruvísi. Þess vegna er svo mikilvægt að þessi botnlausa virðing íslensks almennings fyrir yfirvöldum og lögreglunni sérstaklega, linni. 

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 12:08

9 identicon

Það er gleðilegt að svona sé loksins farið að nást á myndbönd, núna þegar myndbandsvélar eru í nánast öllum símum. Hingað til hafa menn dílað við ofríki lögreglunnar með því að einfaldlega trúa því ekki.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 12:09

10 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ójá! Svona er þetta allt allt of oft!! Og enginn trúir neinu.......

Haldiði að foreldrar piltsins kæri?  

Hrönn Sigurðardóttir, 27.5.2008 kl. 12:52

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég vona svo sannarlega Hrönn að foreldrarnir kæri.

Ég fékk sting í magann við að horfa á þetta.

Helgi Hrafn: Já það er erfiðara að dyljast í nútímanum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.5.2008 kl. 13:24

12 Smámynd: Ylfa Lind Gylfadóttir

Hvað í andskotanum gengur á í þessu myndbandi? Ég er eiginlega bara alveg stopp!!

Ylfa Lind Gylfadóttir, 27.5.2008 kl. 13:30

13 Smámynd: Fríða Eyland

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að embættið sé að skoða atvik sem varð í 10/11 verslun í gær þegar lögreglumaður tók pilt kverkataki...

Hér eru fjörugar umræður um atvikið 

 http://blogg.visir.is/gb/?vi=956#post-956

Fríða Eyland, 27.5.2008 kl. 13:53

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Búin að kíkja á þetta Fríða. Takk.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.5.2008 kl. 14:00

15 Smámynd: Linda litla

Mér finnst bara ekki í lagi með það hvernig lögreglan hérna hagar sér, halda þeir að þeir komist upp emð þetta af því þeir eru í júníformi ?? Eða af því að þeir eru lögreglan að þeir megi gera allt og komast upp merð þetta ??

Frábært að þetta náðist á myndband og ég er sammála ykkur Hrönn, ég vona að foreldrar drengsins kæri þetta.

Linda litla, 27.5.2008 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 2985712

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.