Leita í fréttum mbl.is

Bannað fullorðnum?

head_tent_1a 

Þegar stelpurnar mínar voru litlar, krúsuðum ég og þáverandi, um landið með tjald og fyrirkomulag.

Það var stórskemmtilegt og dæturnar elskuðu það.  Við tjölduðum í Atlavík í 30 stiga hita, Í Skaftafelli á Seyðisfirði,  Ásbyrgi, nefnið það, við drápum þar niður tjaldhæl, ef undan eru skildir Vestfirðir, ég á þá eftir.

Á tjaldstæðunum var mikið af fjöslkyldufólki og auðvitað ungar manneskjur á eigin vegum líka.

Svona eftir á að hyggja, þegar ég les fréttina um aldursfasismann á Akranesi og í fyrra á Akureyri, þá man ég eftir að það voru oft óhugnanleg læti og sukk á næturnar.  Veit einhver hvernig er að sofa í tjaldi þegar nágranninn er með allt á fullu blasti?  Eða hversu vel það heyrist þegar fólk í ölæði rífst hinu megin á tjaldstæðinu?  Nei, kannski ekki, en þá er að taka mín orð fyrir því, það er martraðarkennt ástand.

Og hverjir skyldu nú hafa djöflast mest á tjaldstæðum landsins?  Það voru ekki unglingar, svo mikið er víst.  Það var rígfullorðna fólkið sem datt í það eftir að börnin sofnuðu. Og það hafði hátt.

En ég vildi koma að þeirri skoðun minni að mér finnst það mannréttindabrot að setja aldurstakmörk á tjaldstæði, þá meina ég eftir að fólk er búið að ná lögaldri.

Ætli það myndi ekki heyrast hljóð úr horni ef tjaldstæðisfrömuðir þessa lands bönnuðu öllum 33-43 að tjalda vegna gruns um að það ætti að detta ærlega í það?

Hvað er eiginlega í gangi þarna uppi á Skaga?


mbl.is Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Vó, mín farin að lesa Skessuhorn reglulega, kúúl.

Gæti alveg lýst þessu nokkuð nákvæmlega fyrir þér, þarna sem gerist á tjaldstæðinu, ákkurat á þessum kvöldum sem talað er um, en sleppi því, ekki prenthæft.

Annars allt fínt af Skaganum.

Þröstur Unnar, 14.5.2008 kl. 11:18

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Var að kommenta hjá Heiðu. Maður spyr sig hvort það sé búandi á skaganum........? Þarf að framvísa vegabréfi úti í búð?

Hrönn Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 11:30

3 identicon

Já, Magnús Þór fer mikinn á minni heimasíðu og segir mig bulla og með lítið gáfnafar. Alvarlegast er að hann er formaður félagsmálaráðs og við vitum hér á Akureyri að þessi bannaðferð var ekki til fyrirmyndar.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 11:46

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hver á að meta hver sé "fullorðinn" Er 24 ára fólk "fullorðið" samkvæmt þessari skilgreiningu? Eða þarf fullorðna að vera af næstu kynslóð fyrir ofan 22 ára börnin? Eiga blessuð "börnin" að vera í fylgd með foreldrum??

Meiri fíflagangurinn alltaf hreint!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.5.2008 kl. 11:59

5 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Fáránlegt! Skil ekki hvernig í dauðanum hægt er að setja svona reglur, þvert á skjön við lögaldur og þessháttar. Trúi því ekki að þetta standist lög. Ekki það, ekki mun ég heiðra þessa staði með nærveru minni ef ég fæ einhverju ráðið. Nenni ekki á útihátíðir eða í útilegur.

Bjarndís Helena Mitchell, 14.5.2008 kl. 12:06

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Það er von þú spyrjir!

Þú ert ekki sú fyrsta sem spyr hvað er að gerast hér - hálfgerður cirkus , geta ayðvitað ekki verið eftirbátar Reykvíkinga - þetta er í tísku!

Annars er maður allt of nálægt þessu tril að blaðra um þetta á blogginum, hér og þar.

Edda Agnarsdóttir, 14.5.2008 kl. 13:06

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er snúið mál en ég get tekið undir með þér, að unga fólkið er alls ekki alltaf þeir sem halda vöku fyrir öðrum. En það er erfitt að horfa upp á hóp mjög ungra krakka veltast um í fylleríu og vandræðum. Tel samt ekki að þessi aldrusmörk haldi, börnin vantar eftilvill betri fyrirmyndir.  You Go Girl

Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 13:31

8 Smámynd: Laufey B Waage

Já þetta er auðvitað bara fáránleiki og fíflagangur. Margir 23ja ára og eldri geta víst ábyggilega verið blindfullir og leiðinlegir, nærstöddum til ama og óþæginda.

Laufey B Waage, 14.5.2008 kl. 13:58

9 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, sannarlega er fullorðna fólkið iðulega ekki barnanna best. Ég lenti einmitt í samkvæmi um daginn þar sem stútungskarlar og kerlingar rifust hástöfum viðstöddum unglingum til lítillar gleði.

Steingerður Steinarsdóttir, 14.5.2008 kl. 14:37

10 Smámynd: María Guðmundsdóttir

thetta finnst mér útí hróa og hvernig i fjáranum datt theim akkúrat thessi aldur i hug? er thetta einhver " er ordinn fullordinn og løghlýdinn borgari aldur"? hélt ad vidmid yrdi alltaf ad vera løgaldur..s,s 18.ár? getur ekki verid løglegt..

María Guðmundsdóttir, 14.5.2008 kl. 14:57

11 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Það er alveg ábyggilegt að fullorðnir geta hagað sér eins og bandítar á tjaldstæðum.( maðurinn minn rak einu sinni eitt slíkt) en....

Ástæða þess að þessum aldurshópi ungmenna var meinuð aðganga að tjaldstæðum var sú að einhverju fyrr höfðu bíladagar verið haldnir á Ak þar sem mörg þúsund ungmenni komu saman..og í stuttu máli þá varð ástandið óviðráðanlegt.

Ég átti og rak pylsuvagn í miðbænum þá og ég hef aldrei séð annað eins. Nokkur hótel voru í kringum mig og ég verð vitni að því að fólk var að míga og skíta út um gluggana, henda glerflöskum á göngugötuna í hóp af fólki, það voru stanslaus slagsmál út um allan bæ og á flestum ef ekki öllum tjaldstæðum..fjölskyldur flýðu umvörpum því þeim var ógnað með glerbrotum og hnífum, ráðist var á starfsmann..ólétta konu og hún lamin, eigur bæjarbúa voru skemmdar...það sem eftir stóð var örmagna fólk sem hafði vakað megnið af þessari helgi, bæði vegna hávaða og eins var fólk að reyna passa eigur sínar. Tjaldstæðin komu út úr þessu með miklu tapi því allur gróðinn fór í að laga og endurgera tjaldstæðin..þegar ég var yngri fór ég á útihátíðir..þær voru eins og stúkusamkunda samanborið við þessa helgi

Ég var sjálf í vafa um að þetta væri rétt  ákvörðun bæjaryfirvalda en skil þetta engu að síður....held hins vegar að það væri rétt að koma í veg fyrir svona með því að vera hvorki með böll eða aðrar skemmtanir sem trekkja að þennann aldur.....svo er ekki víst að það dugi og eitthvað þurfti að gera.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.5.2008 kl. 16:07

12 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Þvílíkt bull er þetta, margir eru jú giftir 23 ára og komin með börn, sem sagt fjölskyldufólk, þá er að draga ömmu og afa með til að halda ærlegt partý saman.  Klikkun!

Ía Jóhannsdóttir, 14.5.2008 kl. 16:17

13 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

jú margir eru giftir 23 ára og með börn....en ég er með skrifum mínum að benda á að það var fátt annað hægt að gera á þeim tíma....er einhver með tillögur.....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.5.2008 kl. 16:34

14 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Það þarf að lesa bókunina í heild sinni, ekki það sem misvitrir blaðamenn draga hluta efnis út til að koma af stað deilum. Bókunin er eftirfarandi: " Aðgangur verði takmarkaður við fjölskyldufólk eða einstaklinga 23 ára eða eldri.”Ef þú ert með fjölskyldu, því fellur þú og fjölskylda þín ekki undir þetta aldursákvæði!!Og fyrir óbundna:Það er eitt sem þarf að skilja, að til að hafa lög og reglur í lagi, þá þarf stundum að koma böndum á kringumstæðurnar.  Skemmtilegur enskur málsháttur: "Til að búa til eggjaköku, þá þarf að brjóta nokkur egg." ("To make an omelett, you need to break few eggs.")  Þá er ýmislegt gert sem fólk þar einfaldlega að sætta sig við.  Hraðatakmarkanir á þjóðvegum eru ekki sett heiðvirðum ökumönnum til höfuðs, heldur hinum bjánunun sem aka eins og fábjánar.  En það þurfa allir að fara eftir þeim reglum!Kær kveðja, Björn bóndi.

Sigurbjörn Friðriksson, 14.5.2008 kl. 16:53

15 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er á því að það sé bara ein lausn á svona málum.

Allur almenningur á að eiga aðgang.  Það eru mannréttindi, en ef fólk er með læti og ónæði þá á að fjalægja það.  Alveg eins og gert er við aðra hljóð- og umhverfismengandi einstaklinga.

Takk fyrir skemmtilega umræðu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2008 kl. 18:01

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hei, það hefur ekki kjaftur kommenterað á þessa frábæru mynd.

Haldið að það verði ekki töff ungviðið þegar það mætir með haustjöld á Þjóðhátíð?  Ég meina lágmarks farangur.  Og það verður engin óléttur í svona tjaldi.  Muhahahaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2008 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.