Leita í fréttum mbl.is

Þar fuku lifur og lungu

 Ég er orðin glórulaus varðandi fréttir af samskotamálinu og vinafélagi Hannesar Hólmsteins.

Nú er fullyrt við mig að þetta sé ekki grín.  Alveg dauðans alvara bara.

Við því er fátt að segja annað en:

Fyrirgefið þið á meðan ég æli lifur og lungum og garga mig hása í leiðinni.

Ég hef nákvæmlega enga samúð með frjálshyggjupostulanum.

Myndi frekar brenna peningunum mínum.

Annars góð.

Súmíandkikkmítúðebón.

Ójamm.

 


mbl.is Söfnun fyrir Hannes Hólmstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

ég hélt að það væri kominn 1 apríl!

Huld S. Ringsted, 30.3.2008 kl. 17:33

2 Smámynd: Skaz

Jamm hélt að þetta hlyti að vera eitthvað svindl...

Skaz, 30.3.2008 kl. 17:35

3 identicon

Í raun er þetta grafalvarlegt mál. Ef það verður þannig að tekjur eða söfnunarkraftur stjórni réttarkerfinu á Íslandi er lýðræðið í hættu. Þeir sem setja svo sem krónu í slíkt eru að gefa skít í dómskerfið.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 17:41

4 identicon

Ef þetta er ekki grín  -  af hverju er þá  kennitala Hannesar ekki á reikningnum heldur einhver fæddur 83 ?  flott að fá smá aur inná bókina sína.

,,Númer reikningsins er: 0101 – 05 – 271201 og kt. 131083 – 4089.,,

Helga (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 17:44

5 Smámynd: halkatla

ef þetta er grín þá væri Hannes í þvílíkt góðri stöðu til að kæra þá sem standa á bakvið þetta, er það ekki?  Það er búið að gera svo lítið úr honum, eiginlega skemma alla hans arfleifð sem ofur anti-sósjalist and stuff! Og þeir eiga pening, var ekki borgað undir auglýsingu í mogganum og alles?

en ég held sko að þetta sé alvara, því það er ekkert við þetta "lið" sem getur komið mér á óvart lengur...

ég vona að þú jafnir þig (troðir lungunum aftur oní kok) og náir að upplifa þetta á þann súrrelíska hátt sem ég geri

halkatla, 30.3.2008 kl. 17:48

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Sama hérna megin. Eitt í dag og annað á morgun.   Ég er svo sammála Gísla, þetta er grafalvarlegt mál. 

 Héðan fer ekki túskildingur með gati það er sko alveg víst.

Ía Jóhannsdóttir, 30.3.2008 kl. 17:52

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Eitt enn af hverju þegir Hannes Hólmsteinn?

Ía Jóhannsdóttir, 30.3.2008 kl. 17:55

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Er ekki verið að grínast? Sjálfur frjálshyggjupostulinn farin að biðja um ölmusur! Ég man eftir að hafa lesið viðtal við hann þar sem hann stærði sig af ríkidæmi sínu sem hann hefði aflað með því að fjárfesta í réttu félögunum á rétta tímanum? Er hann búinn að spandera því öllu? Kannski að hann þurfi ekki að standa undir sínum útgjöldum eins og við aumir launþegar. SVEI!

Helga Magnúsdóttir, 30.3.2008 kl. 18:12

9 identicon

Er 1 April ekki á  þriðjudag?OMG hvað þetta er asnalegt.Ef ég gef einhverjum aukaaurana mína þá verður á Her.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 18:18

10 Smámynd: Signý

Ég er eiginlega hálf orðlaus bara... Ég stend enþá í þeirri trú að þetta sé grín... allavega hló ég þessi óskup þegar ég sá svona auglýsingu um þetta, fannst þetta alveg gargandi snilld, húmorískt séð

Ég eiginlega neita að trúa því að þetta sé satt, að þetta sé alvöru... 

Signý, 30.3.2008 kl. 18:18

11 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

þegar ég sá þessa frétt hélt ég í alvöru að þetta væri grín

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 30.3.2008 kl. 18:59

12 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Hannes Hólmsteinn hefur skemmt þjóðinni um áratugi, verðum við ekki að hjálpa honum þegar illa árar hjá kappanum?

Markús frá Djúpalæk, 30.3.2008 kl. 19:12

13 identicon

Kannski maður afþakki afmælisgjafirnar 1. april og biðji um að andvirðið verði látið renna í söfnunina fyrir Hannes. Nei annars hef aldrei þolað hann né hans skoðanir. kv. 1.aprílgabbið

1. aprílgabbið (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 19:19

14 Smámynd: Björn Heiðdal

Þó að Davíð og Hannes séu kærustupar er varla boðlegt að betla brúðargjafar án þess að bjóða manni í brúðkaupið.

Björn Heiðdal, 30.3.2008 kl. 21:32

15 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha ég var að reka augun í þetta og hugsaði það sama: ''ertu ekki að fokking kidda mig..''

Jóna Á. Gísladóttir, 30.3.2008 kl. 21:38

16 Smámynd: Marta B Helgadóttir

ha hahhahaaaa  !!!!!!!!

snemmbúinn 1.apríl   - hlýtur bara að vera rétt hjá Huld

Marta B Helgadóttir, 30.3.2008 kl. 21:48

17 identicon

er þessi drengur eitthvað ruglaður ?

hvar eru þessar fjársafnanir þegar nauðgunarfórnarlömb sitja sundurtætt andlega og þeir sem brutu á þeim fá skilorðsbundna dóma?

ég er frjálshyggjumaður, en þetta er nú alveg fáránlegt

Hörður (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 21:49

18 identicon

Fyrir nokkrum árum sagði Bubbi Mortens á útvörpuðum hljómleikum að hann hefði áreiðanlegar fréttir fyrir því að Hannes Hólmsteinn hefði verið gómaður í bólinu á hótelherbergi erlendis með strák undir lögaldri. Hannes Hólsteinn hefði örugglega kært Bubba fyrir rógburð ef þetta hefði einfaldlega ekki verið sannleikur.  

Stefán (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.