Leita í fréttum mbl.is

Hiđ svarta blćti Jennýjar Önnu

 

Ég á viđ vandamál ađ stríđa.  Bara eitt sko.  Jerćt.

Ég er fatasjúk, en vandamáliđ er ekki ţađ, fatasýki er afskaplega skemmtilegt tómstundagaman, svona nćstum ţví jafn skemmtilegt og ađ blogga.

Vandamáliđ er hinsvegar ásćkni mín í svartan fatnađ.  Svart, svart, svart.  Ef ţađ leynist bara eins og ein lítil rós eđa tvćr köflur á flík ţá er hún út. 

En í London átti ađ gera bragarbót á hinum svarta fataskáp.  Vilji einbeittur. 

Ég óđ um verslanir borgarinnar og gúffađi í körfur og kistla.  Frumburđur dró mig međ valdi ađ bláum, rauđum, gulum,grćnum, röndóttum, doppóttum og köflóttum fatarekkum.  Hm.. já, sagđi ég, of ćpandi, fitandi, styttandi, lengjandi og svo dróst ég eins og segull ađ hinum svörtu rekkum međ örlitlu stoppi viđ ţá gráu, ţar sem keypt voru nokkur ćtem.

Niđurstađa: Fullur fataskápur af kjólum, peysum, og öđru slíku, ásamt skóm, í svörtu.

Ég ţarf ađ nota vasaljós ţegar ég leita mér ađ klćđum á morgnanna.

Heiđar snyrtir myndi segja ađ ég vćri ađ loka orkuna mína inni, en ég segi ađ ég sé ađ halda orku annarra úti.

Getur einhver gefiđ mér skýringu á ţessari ást á svörtum fatnađi?

Ţetta hlýtur ađ vera sálrćnt.

Er ţetta löngun til ađ verđa ekkja, stunda jarđafarir, sjást ekki, eđa bara líta út fyrir ađ vera virđuleg?

Einhver?

Ţekkiđ ţiđ einhvern sem á svarta sumarkjóla? Já ţiđ ţekkiđ mig!

Ţekkiđ ţiđ marga sem hafa gift sig í svörtu?  Já ég er ein af ţeim.

Hjálp!!!!!!!!!!!

Úje Blakkisbjútífúll.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég ţekki ţetta ansi vel, enda á ég líka fullan fataskáp af svörtu, geng bara í svörtu eins og ég sé stöđugt syrgjandi ! Skýringu hef ég ekki en ég dregst ađ svörtu rekkunum líka í búđunum og ţađ breytist ekki!

Blakk er sannarlega bjútifúl og kannski pínu mystískt líka

Sunna Dóra Möller, 30.1.2008 kl. 11:57

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

getur ţađ veriđ hrćđslan viđ allar rósirnar, kaflanna og önnur munstur sem voru í fatnađi mömmu, ömmu og langömmu?

Allavega sýnist mér okkar kynslóđ stefna hrađbyri í svörtu grátkonurnar á spáni.

Edda Agnarsdóttir, 30.1.2008 kl. 12:00

3 Smámynd: Signý

Ég er svona líka, ţó ég eigi alveg samt flíkur í öđrum litum, en ţađ eru yfirleitt hlutir sem ég kaupi ţegar ég er í "ţetta-gengur-ekki-signý-ţú-verđur-ađ-kaupa-allavega-eina-flík-í-öđrum-lit"  mode

En ţá ţarf ég líka alveg ađ fara úr karakter og ljúga ađ sjálfri mér ađ ţessi eđa hin flíkin, eins fáránleg á litin og hún er, fari mér í alvörunni vel. Mín verstu kaup á fötum hafa veriđ ţegar ég hef keypt eitthvađ í "björtum sumarlegum litum", alveg óţolandi ađ láta plata sig svona

Svart er bjútífúl! Ég t.d kaupi mér aldrei annađ en svarta bíla, ţađ er bara RUGL ađ eiga bíla í öđrum litum... eđa ţannig

Signý, 30.1.2008 kl. 12:05

4 identicon

Lyrics for: Black Is Black Black is black
I want my baby back
It's gray, it's gray
Since she went away, Ooh-Ooh
What can I do
'Cause I-I-I-I-I'm feelin' blue

If I had my way
She'd be back today
But she don't intend
To see me again, Ooh-Ooh
What can I do
'Cause I-I-I-I-I'm feelin' blue

I can't choose
It's too much to lose
My love's too strong
Wow! Maybe if she
would come back to me
Then it can't go wrong

Bad is bad
That I feel so sad
It's time, it's time
That I found peace of mind, Ooh-Ooh
What can I do
'Cause I-I-I-I-I'm feelin' blue

I can't choose
It's too much to lose
My love's too strong
Wow! Maybe if she
would come back to me
Then it can't go wrong

Black is black
I want my baby back
It's gray, it's gray
Since she went away, Ooh-Ooh
What can I do
'Cause I-I-I-I-I'm feelin' blue
'Cause I-I-I-I-I'm feelin' blue
kv gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráđ) 30.1.2008 kl. 12:08

5 Smámynd: M

Á viđ sama vandamál svo ég get lítiđ útskýrt ţetta. Slćđast inn gráar og brúnar flíkur + gallabuxurnar Svart er bara klassískt og flott.

M, 30.1.2008 kl. 12:17

6 Smámynd: Katrín Snćhólm Baldursdóttir

Svart er smart segi ég nú bara..en oh my god hvađ íslenskar konur eru einsleitar í tísku og straumum...Ţćr eru bara nćstum allar alveg eins. Sú sem er smart er jafnsmart og allar hinar ţúsundirnar og einhverra hluta vegna er ţađ bara ekkert smart. Get my point???

Katrín Snćhólm Baldursdóttir, 30.1.2008 kl. 12:19

7 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Ég gifti mig í svörtu 1977, ţađ hneykslađi marga, geng mikiđ í svörtu, held ţađ sé til ađ vera ekki áberandi

Svanhildur Karlsdóttir, 30.1.2008 kl. 12:21

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Sumir hafa bara einfaldan smekk.  Svart er líka ágćtis litur, ţó ég vildi ekki vera eingöngu í svörtu, ţá líđur mér ágćtlega í ţeim lit.  En auđvitađ getur vel veriđ ađ eitthvađ í ţér velji ţennan lit um stundarsakir.  

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 30.1.2008 kl. 13:01

9 Smámynd: Hrönn Sigurđardóttir

Ef ţú fćrir í litgreiningu vćrirđu ţá ekki bara síđbúinn vetur?

Hrönn Sigurđardóttir, 30.1.2008 kl. 13:13

10 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Megniđ af mínum fötum eru svört, eđa međ svörtu ívafi. Bara klassískt held ég.

Bjarndís Helena Mitchell, 30.1.2008 kl. 13:31

11 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Svart svínvirkar, ţannig er ţađ bara.

Lára Hanna Einarsdóttir, 30.1.2008 kl. 14:06

12 Smámynd: Markús frá Djúpalćk

Eđa eins og Johnny Cash orđađi ţađ svo fagurlega:

Well, you wonder why I always dress in black,
Why you never see bright colors on my back,
And why does my appearance seem to have a somber tone.
Well, there's a reason for the things that I have on.

I wear the black for the poor and the beaten down,
Livin' in the hopeless, hungry side of town,
I wear it for the prisoner who has long paid for his crime,
But is there because he's a victim of the times.

I wear the black for those who never read,
Or listened to the words that Jesus said,
About the road to happiness through love and charity,
Why, you'd think He's talking straight to you and me.

Well, we're doin' mighty fine, I do suppose,
In our streak of lightnin' cars and fancy clothes,
But just so we're reminded of the ones who are held back,
Up front there ought 'a be a Man In Black.

I wear it for the sick and lonely old,
For the reckless ones whose bad trip left them cold,
I wear the black in mournin' for the lives that could have been,
Each week we lose a hundred fine young men.

And, I wear it for the thousands who have died,
Believen' that the Lord was on their side,
I wear it for another hundred thousand who have died,
Believen' that we all were on their side.

Well, there's things that never will be right I know,
And things need changin' everywhere you go,
But 'til we start to make a move to make a few things right,
You'll never see me wear a suit of white.

Ah, I'd love to wear a rainbow every day,
And tell the world that everything's OK,
But I'll try to carry off a little darkness on my back,
'Till things are brighter, I'm the Man In Black

Kannski eitthvađ sem ţiđ Johnny heitinn eigiđ sameiginlegt?

Markús frá Djúpalćk, 30.1.2008 kl. 14:43

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

SD: Eins gott ađ ţú venjist ţeim svarta, verđandi prestur og allt.  Eru ţeir ekki alltaf svo blakk, eđa eru ţađ nunnurnar?

Edda:Gćti veriđ rétt en svart er klassi, međ pínu litlu af einföldum skartgripum.  Less is more.

Signý: Hef eimitt stađiđ fyrir svona tískuhamförum t.d. á vorin og logiđ inn á sjálfa mig einhverja sumarliti.  Enda undantekningarlaust hjá hernum.

Gísli: Takk fyrir ţetta.  Guđ hjálpi nágrönnum mínum ţegar ég hef upp raust mína.

M: Tek líka undantekningu á gallabuxurnar og einstaka gráan jakka.

Svanhildur: Hahahaha, ţú hefur veriđ áberadi í svörtum brúđar áriđ 1977

Hrönnsla: Er búin ađ fara í litgreiningu er bćđi síđ- og snemmbúinn vetur.  Á háum hćlum viđ hvert tćkifćri.

Ásthildur: Ţetta hefur alltaf veriđ svona međ örfráum undantekninguml.  Sem sagt komiđ til ađ vera.

Bjarndís og Lára Hanna: I know you girls.  Á samt einn rosa klassa kjól svartan međ einhverju hvítu fugladriti á - nota hann ekki

Markús: Takk fyrir texta en viđ Jhonny Cash eigum fleira sameiginlegt og ţađ er ađ elska ađ syngja lagiđ " title="my own persona jesus">my own personal jesus 

Dúa: Asni

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2008 kl. 15:29

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hallgeđur: Sammála en viđ skreytum okkur látlaust steingeiturnar og erum ţess vegna flottastar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2008 kl. 15:40

15 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Tengist ţetta ekki myndskreytingunni? Ţú ert vođa svag fyrir nornum, hefur mér sýnst. Langar ţig ađ vera norn? ERTU norn??

Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.1.2008 kl. 15:54

16 Smámynd: Halldór Egill Guđnason

Svart er flott. Er líka steingeit og var litgreindur einhversstađar milli jóla og nýárs, enda er mér nánast alveg sama hverju ég klćđist, svo lengi sem mér verur ekki kalt.

Halldór Egill Guđnason, 30.1.2008 kl. 15:54

17 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ragnhildur: Ég er sko alvöru norn muhahahaha

Halldór: Minna mál hjá strákum.

Katrín: Hvađ er nú ţetta ađ vera dissa íslenskar konur og segja ađ ţćr séu einsleitar.  Ertu útlendingur? Ertu ţú ţá ekki einsleit?  Ég hef sko stíl, svartan háklassa stíl.  HEHE

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2008 kl. 15:58

18 Smámynd: Tiger

Vitiđ ţiđ hvađ... ég las eđa heyrđi ţađ einhvern tíman ađ ţeir sem velja sér fatnađ í svörtu - og ţá meina ég allt svart - ţá eiga ţeir viđ ákveđiđ ţunglyndi ađ stríđa.

Svartur litur er ţunglyndur litur finnst mér - eiginlega ekki einu sinni litur hvađ ţá meira, heldur bara svona eitthvađ ... eitthvađ ekkert - bara svart.

Ég vel mér oft svarta boli til ađ vera í vegna ţess ađ ég er mjög dökkur yfirlitum, svona eins og grískt gođ  en svartir bolir fara mér t.d. mjög vel. Samt á ég örugglega um 70 mismunandi boli og líklega eru innan viđ tíu ţeirra svartir.

Tiger, 30.1.2008 kl. 17:15

19 Smámynd: Kolgrima

Systir mín gifti sig í svörtu - allt frá hatti (međ slöri) niđur í skó. Og ók í burtu frá athöfninni í eldgamalli svartri bjöllu.

Kolgrima, 30.1.2008 kl. 17:23

20 Smámynd: Heiđa B. Heiđars

En... er ekki bara máliđ ađ ţú fílar ţig best í svörtu? Engin ástćđa til ađ breyta... svo framalega sem sálartetriđ fer ekki alveg oní kjallara ţegar ţú klćđir ţig

Heiđa B. Heiđars, 30.1.2008 kl. 18:20

21 identicon

Ég á viđ svipađ litavandamál ađ stríđa.Finnst svart flottast og öruggast.Hehehehehehehe

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráđ) 30.1.2008 kl. 19:01

22 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sálartetriđ elskar svart, lungun á mér líka og allur afgangurinn af mér.  Ţunglyndi mitt er tilkomiđ vegna allrar ţessarar birtu á sumrin

Birna Dís: Svart er ekki litur, ţar af ekkert litavandamál í gangi.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2008 kl. 20:14

23 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Ég er sammála Katrínu - fór fyrir 2 árum eđa svo á ráđstefnu ţar sem mćttar voru íslenskar bissnesskonur í hrönnum, og svona 99,9% voru í svörtu. Ţćr allra djörfustu voru í gráu eđa bláu.

Viđ megum alveg vera litaglađari hér á hjara veraldar. Ţetta er svolítil einsleitni,

Svala Jónsdóttir, 30.1.2008 kl. 23:53

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985718

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.