Leita í fréttum mbl.is

Ráðagóðir alkahólistar

 

Í gegnum árin hef ég heyrt ævintýralegar sögur af hugmyndauðgi alkahólista, til að fá að drekka í friði fyrir umhverfinu og virðist sem hugmyndaflugi þeirra virðist lítil takmörk sett.  Spurning hvort heimurinn væri ekki komin lengra á veg í öllu tilliti ef við þessar elskur hefðum notað frjósemi hugans til góðra verka.

Ég fór að pæla í þessu þegar ég sá þessa frétt um að Danir ættu Evrópumet í ofdrykkju.

Mér detta í hug nokkrar aðferðir bara með að láta hugann reika aðeins til baka.

Einn úr fjölskyldu minni var kominn í ónáð heima hjá sér vegna brennivínsdrykkju.  Hann tók á það ráð að sprauta vodka inn í góðan slatta af appelsínum, sem hann úðaði í sig yfir ensku knattspyrnunni. 

Sá hinn sami, tók niðursuðudósir sem hann stakk gat á tæmdi, fyllti af áfengi og lóðaði fyrir gatið.  Þetta var nestið hans í vinnunni.

Maður mér vel kunnugur þurfti að mæta í dönskutíma á laugardögum, flaskan var í skólatöskunni, plaströr var leitt úr flösku og undir jakka og upp í hálsmál.  Hann var glaður í dönskunni og kennarinn lét hann lesa fyrir bekkinn, hann hafi svo afslappaðan framburð.

Þegar ég sjálf var farin að fara ótæpilega oft í ríkið (alltaf það sama vegna bílleysis) klæddi ég mig í dragtina, skellti áfenginu á borðið og bað um nótu, ferlega kúl í framan.  Var auðvitað að kaupa fyrir "fyrirtækið" mitt.  Ég er svo viss um að þær hafa allar séð í gegnum mig á kassanum en voru svo vinsamlegar að láta sem ekkert væri.

Boðskapur þessarar færslu er ekki að segja krúttlega brandara af ölkum með hugmyndir.  Þó ekki sé annað hægt en að brosa af vitleysunni. Heldur hversu langt maður er tilbúinn að teygja sig til að geta fengið sitt fíkniefni og að fá að hafa það í friði.

Hvað söguhetjurnar í dæmisögunum áhrærir, þá hafa þær allar farið í meðferð, sumar oftar en einu sinni,hehemm.  Ætli við séum af dönskum ættum?

Farin edrú í lúll.

Þarf enga nótu fyrir því.

Úje


mbl.is Evrópumethafar í ofdrykkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Signý

Vá... sprauta áfengi í appelsínur? Aldrei datt mér það nú í hug þó manni hafi þó dottið ýmislegt í hug fíkillinn í mér öskrar alveg "þvílík snilldar hugmynd"... en auðvitað er þetta samt sorglegt hvað maður er tilbúinn að leggja á sig.

Signý, 30.1.2008 kl. 01:11

2 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Ég bið um nótu fyrir þessu kvitti því ég er í raun farin að sofa og er ekki hérna!

Híhí, annars ótrúlegt! Hef heyrt margar svona sögur og best þegar fólki tekst að komast út úr vítahringnum og sjá þessar gjörðir sínar í öllum sínum absúrdleika!

Laufey Ólafsdóttir, 30.1.2008 kl. 01:46

3 Smámynd: Tiger

*hlátursgusa* verð að segja það að mér finnst myndin sem þú sendir inn með þessum pisli þínum alveg hreint úbergeggjuð!

Er sammála með að alkar eru með bestu leikurum/uppátækjasmiðum sem herra þeirra hefur alið. Alkahólið/brennivínið er harður húsbóndi sem sér til þess að undirmenn sínir nái sínu dópi - sama hvernig eða hvað þeir þurfa að gera til þess...

Húsbóndinn er það harður yfirmaður að þó maður sé ekki lengur í þjónustu hans - eða að hann sé ekki lengur sem slíkur í lífi fólks þá þarf fólk samt á hverjum degi að berjast með kjafti og klóm til að lenda ekki aftur í vinnu hjá honum. Það er vegna þess að hann hefur aðdráttarafl á við tonn af glaumgosum og er margfallt meira augnkonfekt, í augum hans fyrrum þræla, en Elísabet Taylor (teilor) þegar hún var uppá sitt fallegasta.

Tiger, 30.1.2008 kl. 02:53

4 identicon

Snilld.

Einu sinni (sem oftar) hætti ég að drekka, eftir misheppnað gleðikvöld. Hef örugglega ekki borðað rétt á undan, eða blandað saman sortum......Hmmm var ég kannsi að drekka whiskey?? ( náttúrluega voru það orsakirnar, ekki að ÉG væri alki ónei).

Nema hvað minns HÆTTUR, ekki nóg með það, nú verður tekið á því. Nýtt líf !! Fer í líkamsrækt !!!!! Og já breyti um fæði, fer að borða einungis GRÆNMETI!!!. Áfengi aldrei meir ég meina ALDREI!!! og hananú.

Jahá, með þessum heitstrengingum hófst hið nýja líf Einars litla Arnars. Ef þú hefur efasemdir hér og nú þá skulu þær skotnar í kaf. Ég stóð við mitt ( að vísu bara oggulítinn hluta af heitstrengingunum) Ég fór og keypti kort í ræktina. Fór að vísu ekki í ræktina............ allavega ekki þann daginn (roðn). Fór heim með nýkeypt kort, mændi á það, hringdi í vini og vandamenn og tilkynnti með hátíðlegum eið hið nýja líf. Leið nú að kveldi hins fyrsta dags í nýja lífstílnum. Fór að finna fyrir svengd. Klæddi mig í fínt púss, nú skyldi ég eta opinberlega mína fyrstu grænmetismáltíð í nýja lífinu (á þeim tíma var ég heimsfrægur í Keflavík). En...............................

Ekki veit ég hvað gerðist, en á leiðinni á veitingastaðinn, þá gerðist eitthvað í heilabúinu á mér, og maðurinn sem var hættur að drekka, byrjaður í ræktinni og nýbúi í heimi grænmetisæta fór í þeim ásetningi inn á veitingahúsið að eta grænmeti og drekka vatn, trúði því í raun og veru að bjór væri samnefnari alls þessa. Bjó er jú bruggaður úr humlum og einhvernslags músli, ekki fyrirfinnst ketið í afurðinni, ekki satt?. Ég skundaði inn á staðinn, bað um einn stóran bjór TAKK! og sá bjórinn varð ekki einmana í mínum maga.

Fór ekki frekari sögum af hinum nýja lífstíl mannsins hugumprúða. Allavega ekki fyrr en hann játaði sig sigraðan að lokum.

Ps þegar ég flutti um daginn, fann ég það, ofan í gömlum vindlakassa, 10 ára gamalt kort í líkamsrækt, árskort. hehe.

Sorry Jenný mín, ætlaði ekki að gera þetta að stórbloggi á síðunni þinni, en mátti til. Takk fyrir mig. Gefur mér mikið að tengja við bloggin þín.

Með bros á vör.

Einar Örn EInarsson (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 05:12

5 identicon

Einum heyrði ég af sem fyllti garðslönguna af Vodka. Slangan var rúlluð upp á kefli og geymd í bílskúrnum. Það þarf varla að nefna það að eftir að hafa fengið þessa fínu hugmynd var enginn bíll betur bónaður en hans.

Árni Pálsson (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 07:27

6 Smámynd: Hugarfluga

Broslegt, en að sama skapi svo ofboðslega sorglegt. Góðan dag til þín, vúman.

Hugarfluga, 30.1.2008 kl. 08:45

7 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Ég er sammála síðustu athugasemd að þetta er broslegt en um leið svo sorglegt!

Góðan daginn til þín líka héðan

Sunna Dóra Möller, 30.1.2008 kl. 09:06

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

góðan daginn allar.  Mér finnst brilljant þessi aðferð með að opna tvær dósir í einu, þekki svo margar konur sem beinlínis hata hvisshljóðið þegar karlinn er að opna bjórinn.  Brilljant en sjúkt bara svo það sé á hreinu.

En pæliði í því hvað Þórarinn Tyrfingsson hefur heyrt margar svona sögur?  Vá! Efni í ritröð örugglega.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2008 kl. 09:31

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Bráðskemmtileg færsla og bráðskemmtileg komment. En kannski er grátbroslegt betra orð

Jóna Á. Gísladóttir, 30.1.2008 kl. 09:36

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jónsí mín, alltaf tvær hliðar á peningnum, nema nottla að þú vitir um einhliða mynt? Hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2008 kl. 09:46

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábær færsla hjá þér Jenný, ég ætla bara að njóta þeirra án samviskubits yfir ölkunum.  Því sögurnar eru rosalega góðar. 

Hann var látin lesa upp í dönskutímanum af því að hann hafði svo afslappaðan framburð, þú ert snillingur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2008 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband