Leita í fréttum mbl.is

Amerísk krumla laganna?

Mig rak í rogastans, þegar ég sá þessa frétt á visi.is.

Þar segir að Aron Pálmi hafi verið stöðvaður á götu af manni frá sendiráðinu sem afhenti honum nafnspjald sitt.  Starfsmaðurinn mun hafa haft í hótunum við Aron Pálma og sagt að ef hann stigi fæti inn í bandaríska sendiráðið, yrði hann handtekinn.

Aron Pálmi hefur haft samband við Utanríkisráðuneytið.

Bandaríska sendiráðið harðneitar en visir hefur nafnspjald mannsins í fórum sínum og það er staðfest að hann vinnur hjá sendiráðinu.

Ég ætla rétt að vona að málið verði rannsakað.

Að Ameríka sé ekki að ofsækja Íslendinga.

Þá er þetta alvarlegt mál.

Varla á að láta þetta órannsakað?

Eða hvað?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Öllu  hægt að trúa á Kanann,sammála þér þetta er mjög alvarlegt mál,en hræddur er ég um að  ekki verði mikið gert í því.

Ari Guðmar Hallgrímsson, 28.11.2007 kl. 20:46

2 Smámynd: Egill

auðvelt að vera óþekkur þegar engir fullorðnir eru til staðar og þú ert stærri en hinir.

Egill, 28.11.2007 kl. 21:10

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Egill: Nú skil ég ekki.

Ari Guðmar: Mig grunar reyndar að það sé rétt hjá þér, að það verði ekki mikið gert í málinu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.11.2007 kl. 21:12

4 Smámynd: Egill

auðvelt að vera óþekkur (ofsækja) þegar engir fullorðnir eru til staðar og þú ert stærri en hinir (bandaríkin)

hver ætlar s.s. að skikka bandaríkin til þegar opinberir starfsmenn þess haga sér svona ?

þeir eru stærri og voldugri en restin af heiminum og geta augljóslega hagað sér eins og þeim sýnist.

erfitt fyrir aðrar þjóðir að skikka þá til.

Egill, 28.11.2007 kl. 21:34

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þetta var rosalega skrýtið! Drengurinn er búinn að sitja af sér dóminn, hvað er þá í gangi. Urðu þeir svona spældir yfir því að hann hafi hagað sér vel og ekki rofið skilorðið til að þeir gætu látið hann sitja endalaust inni. Það var því miður ekki þannig að við gætum bjargað honum heim til Íslands til að "afplána" hér. Arggg. Ég las bókina hans Arons Pálma og hún er mikill áfellisdómur yfir refsigleði þeirra í Texasfylki og illri meðferð á börnum og unglingum sem hafa ratað á glapstigu.

Guðríður Haraldsdóttir, 28.11.2007 kl. 21:40

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Egill: Takk fyrir, ég er svo þreytt núna að ég las og las og kveikti ekki, en ég viðurkenni það þó.  Eins og þetta liggur í augum uppi.  Ég er sammála þér auðvitað.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.11.2007 kl. 21:40

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gurrí: Ég ætla að lesa bókina.  Auðvitað dæmir maður ekki börn til fangelsisvistar þ.e. ef maður er með réttu ráði.  ARG

Ég held að þeir ættu að láta manninn vera þarna í sendiráðinu.  Hvern andskotann eru þeir að spekúlera ef rétt reynist?

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.11.2007 kl. 21:57

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég hef ekki fyllst með þessu skrýtið. Takk Jenný mín fyrir stuðninginn.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.11.2007 kl. 21:57

9 Smámynd: Hróðmar Vésteinn

Aron Pálmi er dæmdur barnaniðingur og á að fara með hann sem slíkann.

Hróðmar Vésteinn, 28.11.2007 kl. 23:08

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Og hvernig fer maður með "slíka" Hróðmar Vésteinn?

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.11.2007 kl. 23:24

11 Smámynd: Linda litla

Fara með hann sem slíkann ?? Er drengurinn ekki búinn að taka út sinn dóm ?

Linda litla, 28.11.2007 kl. 23:27

12 Smámynd: Árni Gunnarsson

Getum við ekki losað okkur við þessi Kanakvikindi út úr borginni?

Finnst fleirum en þessum hjartahreina Hróðmari Vésteini svona lagað vera eitthvað sem við eigum að þola þessum bandittum?

En kannski er þetta bara eitthvað sem elítunni í Sjálfstæðisflokknum hefur verið innrætt í Valhöll.

Árni Gunnarsson, 28.11.2007 kl. 23:36

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er nóg komið af þessu einelti við blessaðann drenginn.  Fyrst voru skrif þessa Pauls núverandi þingmanns, sem ég er ekki síður standandi hlessa yfir en margir vilja verja og svo þessi viðurstyggð. Ég myndi taka hart á þessu og hér er fordæmi, sem ekki á að líðast af helvítns kananum, svo ég leyfi mér að vera soldið dipló.

Jón Steinar Ragnarsson, 28.11.2007 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband