Leita í fréttum mbl.is

Ég er hógvær, mjög, mjög hógvær

1 

Ég mun halda þessum eiginleika, sem ég greinilega þjáist af, á lofti fyrir alla sem vilja vita (mömmu og pabba, eiginmann, systur, dætur skábörn og vinkonur). 

Ég á mér draum, fyrir utan að vilja bjarga heiminum, koma á fullu jafnrétti, sjá alla mér tengda ásamt mannkyninu í heild, eiga farsæla og góða ævi, að VG komist í stjórn á hverju krummaskuði á Íslandi,og í auðvitað í ríkisstjórn, en hann er í stuttu máli svona:

Mig langar til að eiga heima í timburhúsi á tveimur hæðum, með litlum garði og mörgum trjám.  Húsið á að vera gamalt í gróinni götu í Vesturbænum.  End of dream.  Þessi draumur er ekki að trufla mig neitt, mér líður ágætlega heima hjá mér og á svo sannarlega ekkert bágt.  Svo fór ég að hugsa þegar ég sá þessa "frétt" á visir.is (sem ég auðvitað stal) að kannski ætti ég að stefna hærra?  Óska mér e.t.v. stærra húss, ef óskin myndi taka upp á því að smella.

Sjáið:

"Dreymi þig um að geta horft á kvöldfréttirnar í heitapottinum við róandi snark í arineldi þá er tækifæri til þess núna. Eigirðu 180 milljónir á lausu eða sért í góðu sambandi við bankann þinn geturðu nú fjárfest í 500 fermetra höll Kópavoginum.

Verktakinn Þorgeir Björgvinsson og Klara Guðrún Hafsteinsdóttir hundaræktandi settu nýlega á sölu stórglæsilegt einbýlishús sitt við Asparhvarf í Kópavogi.

Húsið er 501 fermetri og skiptist í 410 fermetra íbúð, 31 fermetra bílskúr og sextíu fermetra hesthús fyrir átta hesta.

Sérhannaðar innréttingar eru í allri íbúðinni og eru eldhúinnréttingar og sólbekkir búnir svörtum granítplötum. Afar veglegt kolsvart borðstofuborð úr graníti prýðir borðkrókinn, og fylgir það húsinu, enda ekkert grín að flytja mörg hundruð kílóa granítplötur langar vegalengdir.

Afar fullkomið gólfhitakerfi er í öllu húsinu. Þá er raflkerfi hússins mjög vandað og mikið af innbyggðri lýsingu frá Lumex. Náttúruflísar eru á öllum gólfum hússins nema í hesthúsi. Ekki væsir um ferfætlingana heldur, en gólf hesthússins er lagt steindúk og básarnir steyptir með grindum úr ryðfríu stáli.

Og þar sem líklega er ekki gaman að þrífa fimm hundruð fermetra hús, en það er í það minnsta gert öllu bærilegra með innbyggðum ryksugubörkum í veggjum allra herbergja.

Viðar Marínósson, fasteignasali hjá Remax, segir að húsið sé eitt það glæsilegasta á höfuðborgarsvæðinu og að verðmiðinn sé í raun ekki svo fjarri byggingakostnaði. Þannig hafi bara hljóð og sjónvarpskerfið kostað um tíu milljónir króna. Það er frá Bang og Olufsen, afar fullkomið, og er hægt að stýra því með fjarstýringu frá flestum herbergjum hússins. "

Það má segja að þörf manneskjunnar fyrir rými sé æði misjöfn, er það ekki?

Það sló mig þetta með 501 fermeterinn.  Hvar skyldi þessi eini hafa lent?

Ójá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég myndi mæla húsið upp -vandlega- myndi sko ekki láta snuða mig um þennan eina fermeter !!

Ragnheiður , 30.10.2007 kl. 22:38

2 Smámynd: Karl Tómasson

Velkomin í Mosó Jenný mín.

Það verður tekið vel á móti þér.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm beina leið úr Mosó.

Karl Tómasson, 30.10.2007 kl. 22:43

3 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Kannski kæmi í ljós að það væri 499..hvort að það  breytti einhverju get ég ekki sagt....en mér fannst bara 499 svo flott tala !

Góða nótt

Sunna Dóra Möller, 30.10.2007 kl. 22:43

4 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Hljómar vel fyrir utan Kópavogspartinn. Djö, annars færi ég strax í greiðslumat

Laufey Ólafsdóttir, 30.10.2007 kl. 23:15

5 Smámynd: Kolgrima

Lausnin er að rækta litla hunda, Jenný mín, þá færðu litla húsið þitt í Vesturbænum

Kolgrima, 30.10.2007 kl. 23:34

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Lausnin er að fara upp í holuna sína og láta sig dreyma um villu.  Það er ódýrara, öruggara og á allan hátt hamingjusamlegra.  En það veistu skottið mitt mjög vel.  Krúsídúlla.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.10.2007 kl. 23:45

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Fallegt, nema hvað VG komast ekki í ríkisstjórn meðan STeingrímur er formaður, láta elskuna hana Guðfríði Lilju eða SVandísi "IRon Maiden" taka við skútunni, þá fryst verður möguleiki!

Gleymdu svo þessum trjám í draumnum, myndir farast eins og vesæll kanakjáni í skógareldi, ef kviknaði í timburhjallanum!

Magnús Geir Guðmundsson, 30.10.2007 kl. 23:47

8 Smámynd: Heiða  Þórðar

Verð að koma í kaffi áður en þú flytur í nýja húsið.

Draumur nefnilega rætast darling...

Heiða Þórðar, 31.10.2007 kl. 00:14

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

MG: Hvaða fargings harkspár eru þetta.

Ásdís: Ég nenni ekki einu sinni að láta mig dreyma um annað en það sem ég þegar hef.  Það er svo ári gott.

Kolgríma: Hundar litlir eða stórir, nenni ekki sollis, en Jákarlarækt og Kókófílatemjun er minn tebolli (úr dýrafræði Jennýjar Unu).

Jón Arnar: Takk þú ert svo sætur og góður alltaf.  Ég les þig líka alltaf.

Sunna Dóra: 499 er allt of lítið.  Það munar um hvern fermeter

Laufey: Staðsetningin er bögg ég viðurkenni það.

Kalli minn: Í mínu ungdæmi var Mosó sveit, sko alvöru sveit, nesti og nýjir skór og tveggja daga ferðalag, nánast.

Ragga: Já ég myndi ekki treysta mælingunni, eins og ég sagði áðan, hver fermeter skiptir máli.  Lalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.10.2007 kl. 00:16

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Heiða mín: Þeir eiga það nefnilega til að rætast, en í svona húsi vill ég klárlega ekki búa.  Myndi líða eins og krækiber í helvíti, fyrir utan hvað það er dedd glatað að vera með pott í stofunni.  Hugsaðu þér barnabörnin, ég yrði geðveik úr hræðslu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.10.2007 kl. 00:19

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ásthildur mín, það er hitinn sem rænir mig vitinu og lætur mig kalla þig Ásdísi.  Sorrí ´sskan

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.10.2007 kl. 00:20

12 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Magnús Geir, það er algjör misskilningur að timburhús brenni oftar en önnur hús, eða þá að það sé auðveldara að komast út úr steinhúsum, ef þar kviknar í. Skoðaðu statistíkina áður en þú heldur svona vitleysu fram.

Jenný, ég hef búið bæði í timburhúsum og steypu, líður átjánþúsundsinnum betur í mínu reisulega timburhúsi en nokkurn tímann kaldri steypunni. Yndislegt þegar brakar í viðnum, manni finnst húsið vera meira partur af fjölskyldunni heldur en bara einhver staður til að borða og sofa og horfa á sjónvarpið. Vonandi rætist draumurinn...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 1.11.2007 kl. 09:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.