Leita í fréttum mbl.is

Enn ein rannsóknin um "selvfölgeligheder"

Ég hefði getað látið þessum mömmun í Sviss, þessar upplýsingar í té, gagn vægu gjaldi.  Þ.e. að hraði sé talinn til marks um karlmennsku.  Halló!

Sé þá fyrir mér grafalvarlega að rannsaka þetta:

"Þegar þátttakendur fengu að heyra „karlmannleg“ orð eins og „vöðvar“ eða „skegg“í útvarpinu í akstursherminum juku þeir hraðann. Þegar þeir aftur á móti heyrðu „kvenleg“ orð eins og „varalitur“ eða „bleikt“ óku þeir um tveim km hægar. Niðurstöðurnar voru svipaðar er þeir heyrðu hlutlaus orð eins og borð og stóll."

Ég legg til að það verði skylduhlustun á lagið "I´m a Barby girl" í öllum bifreiðum landsins, þegar  ungir karlmenn eru úti að aka. 

Það ætti að minnka hraðaakstur og gera stákana meyra og slaka.

Þá verður nú gaman að vera kona í umferðinni.

"Hraði, hraði, Gunnsteinn gr..." hvað?Blush

Ójá.


mbl.is Hraði er karlmennskutákn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

hehe obs...Ég verð að ráða sérstakan söngfugl, ekkert útvarp í mínum bíl eins og sakir standa.

Ragnheiður , 30.10.2007 kl. 17:18

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

...skellihlátur og svo *fliss* í lokin vegna þess að barbígörl er eitt það skelfilegasta lag sem hefur verið samið

Sunna Dóra Möller, 30.10.2007 kl. 17:20

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ein fífla könnunin í viðbót. Næst verður líklegast að kanna hnjástyrk kvenna á tónleikum með t.d. Robbi Williams eða Paul, mæla hvort þær mýkist eða stinnist.    fíflaskapur er þetta endalaust.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.10.2007 kl. 17:24

4 Smámynd: Kolgrima

Þetta er soldið fyndið - líka það að þú skulir hafa vitað að karlmenn gæfu í þegar þeir heyrðu orðið skegg í útvarpinu! Hrifin af því

Ég keyri hraðar þegar eitthvað pirrar mig í útvarpinu, hvort sem það er leiðinleg tónlist (líka þessi bleika og varalitaða) eða samkynhneigðarbulláróðurinn í útvarpi Sögu. Sem ég kveiki aldrei á nema óvart, í bílnum, þegar ég einbeiti mér að akstri en fikta í útvarpinu um leið. 

Kolgrima, 30.10.2007 kl. 17:29

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Strákarnir eru aldir upp við þetta ... bara auglýsingar í leikfangabæklingum sýna að þetta helvíti er sko í gangi. Stelpur eiga að vera stilltar og bleikar prinsessur á meðan strákar berjast með sverðum í sjóræningjabúningum. Mikið er ég fengið að ekki var búið að finna þetta búningadæmi upp þegar ég var lítil, þá voru það sko kabbojleikir um allan Skaga og allar urðum við stelpurnar að fínum dömum þrátt fyrir að hafa fengið útrás og verið frjálsar við svona innrætingu. Hún var vissulega til staðar þá líka en bara ekki með svona prinsessukjaftæði. 

Guðríður Haraldsdóttir, 30.10.2007 kl. 17:32

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kolgríma: "Þetta er soldið fyndið - líka það að þú skulir hafa vitað að karlmenn gæfu í þegar þeir heyrðu orðið skegg í útvarpinu! Hrifin af því"  Hahahaha, nákvæmlega, var með það alveg á hreinu.  Skegg makes them flipp.

Gurrí: Sammála.  Algjörlega.  Bölvuð innræting í gangi og aðskinaðarstefna.  Arg.

Ásdís: Bíð sepenn eftir hnjálskelfiskönnuninni.

Sunna Dóra: I´m a Barbie girl mesta ógeðislag allra tíma.  Af hverju heldurðu að ég hafi valið það?

Ragga: Geir Ólafs tekur fyrir þig Barbie görl eða matcho man, hehe

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.10.2007 kl. 17:52

7 Smámynd: Ragnheiður

GEIR ÓLAFS!!!!

Shittttt....maður fer nú að halda að sumum sé illa við mann. Ég myndi bara keyra á, fast og viljandi , til að losna við hann !!

Ragnheiður , 30.10.2007 kl. 18:05

8 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 19:13

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 30.10.2007 kl. 19:28

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð frábær, amk. nærri því öll. L-F ertu alltaf pirraður?

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.10.2007 kl. 19:42

11 identicon

Ógisslega góð hugmynd þetta lag sem þú ætlar að dengja í eyrun á þessum krúttum. Sé þá keyra löturhægt með stút á munni

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 19:52

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.10.2007 kl. 19:55

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahahahaha

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.10.2007 kl. 20:06

14 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Algerlega ósammála. Ég vil ekki sjá þessa kvenvæðingu karlkynsins.

 VIÐ EIGUM AÐ VERA HRAÐAFÍKLAR, SVEITTIR, MEÐ VÖÐVA OG SKEGG!!! AAARRGH, BRÚAÁHAHAHA, ILLA LYKTANDI MEÐ TÁFÝLU OG KLÓRA OKKUR Á ÓVIÐEIGANDI LÍKAMLEGUM SVÆÐUM Á ALMANNAFÆRI. SVONA ERU KARLMENN, ALVÖRU KARLMENN!!! REKANDI VIÐ, AKANDI EINS OG FÁVITAR OG VIÐ EIGUM AÐ BREGÐAST VIÐ HEIMSKULEGUM ÁREITUM EINS OG STÖKUM ORÐUM MEÐ ÁHÆTTUHEGÐUN!!!

Kommon gott fólk, er ekki verið að gera óþarflega lítið úr okkur með svona fréttaflutningi án alls samhengis, hver borgaði fyrir rannsókninga (mig grunar femínistafélag Svisslendinga), í hvaða tilgangi hún var framkvæmd eða á hvaða forsendum?

Kommon.

Ég stend samt fyllilega við mína lýsingu á karlkyninu.

Púff púff, stóð upp frá tölvunni og var að hnykla, held ég hafi tognað á þremur stöðum, hvar er síminn, 112.......... EINN EINN TVEIR - HJÁLP!!!

Ingi Geir Hreinsson, 30.10.2007 kl. 20:27

15 Smámynd: Ingi Geir Hreinsson

Og, síðan er ég með skegg, ekki eins og Gandalf, heldur svona stutt töffaraskegg. Samt bara einu sinni tekinn fyrir hraðakstur

Ingi Geir Hreinsson, 30.10.2007 kl. 20:29

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ingi Geir: Í einlægni satt, ef það væru birtar svona niðurstöður um konur þá væri einhver í bráðri hættu en engu að síður eru þetta alvöru rannsóknir, þeir virðast amk vera í alvöru þessir vísindamenn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.10.2007 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 2985622

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband