Leita í fréttum mbl.is

ÉG OG ÚTLITIÐ

 1

Það er til tíska í förðun.  Já, já, auðvitað veit það hvert mannsbarn.  Allskonar litanúansar í augnskuggum, blýöntum og varalitum.  Já og litasétteringar í meiki.  Ég er löngu hætt að fylgjast með, breyti helst ekki um andlit ef ég kemst hjá því, nóg er um árhringjaframleiðsluna í smettinu á mér, með öllum þeim breytingum sem hún orsakar. Ég legg ekki meira á ykkur.

Svo eru andlit í tísku líka.  Mikið máluð, lítið máluð (aldrei ómáluð), þykjustunni fersk andlit og mismunandi mjó andlit.  Stundum er hungursvipurinn að gera sig í tískuheiminum og þá á kona að líta út fyrir að nærast á sólarljósinu einu saman, hún á að vera kinnfiskasogin og með önnur merki örbirgðar í andlitinu.

Ef að fölleitar konur með bauga undir augum kæmust í tísku á þessu laugardagskvöldi þá yrði ég andlit kvöldsins.  Jafnvel mánaðarins, svei mér þá.

Hvernig stendur á því að ljótan getur heltekið mann svona algjörlega óforvarandis án þess að maður hafi unnið sér inn fyrir því á nokkurn hátt?  Hér hef ég verið bláedrú, er útsofin og borða eins og meinlætamaður en samt, hm...  Hvað veldur?

Er farin í andlitsbað, strekkingu og augnuppskurð.

Síjúgæs!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

... Er til tíska í andlitsmálningu?? Úps... Annars hef ég aldrei skilið konur sem geta ekki farið út úr húsi án þess að setja á sig maskara eða varalit...

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 8.9.2007 kl. 23:22

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ljót miðað við ... ????? Knús til þín, sætust!

Guðríður Haraldsdóttir, 8.9.2007 kl. 23:40

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrönn Sigurðardóttir, 8.9.2007 kl. 23:43

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ekki er ég nú dugleg í málningadeildinni, held ég hafi meikað mig 5 sinnum um ævina og nota svo kalda vatnið sem hreinsikrem. Við erum lang sætastar punkur og pasta.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.9.2007 kl. 23:51

5 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Æ, svona hellist yfir mann einstaka sinnum. Svo er málið bara að dekra pínu við sig, brosa síðan í spegilinn og svo framan í heiminn. Þá líður þetta hjá held ég.

Bjarndís Helena Mitchell, 8.9.2007 kl. 23:54

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég kem með þér! En ég ætla að byrja á tönnunum svo ég verði ekki kinnfiskasogin.

Edda Agnarsdóttir, 9.9.2007 kl. 00:05

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Híhí, ég er hin sprækasta sko en assi hreint veikindaleg í framan, það verður að segjast!

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.9.2007 kl. 00:23

8 Smámynd: Rebbý

við erum lang flottastar ómálaðar og með hláturhrukkurnar í tugatali
þannig kýs ég allavega enn að sjá málið

Rebbý, 9.9.2007 kl. 01:01

9 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Jamm, þið segið það.

Satt að segja - svona í fullum trúnaði - þá hef ég ALDREI farið ómáluð út fyrir hússins dyr frá því ég var 13 ára gömul. Hananú! Gæti allt eins farið ALLSBER út í búð eins og maskaralaus.

En þetta er nú bara svona okkar á milli - eða þannig - hefur EKKERT með fyrirmyndir að gera. Bara sjálfsmyndina. Ég vil nefnilega hafa áhrif á hana SJÁLF.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 9.9.2007 kl. 03:01

10 Smámynd: krossgata

Ég fer afar sjaldan af bæ án maskara, oft nota ég smá augnblýant líka.  Mér finnst augun mín falleg og þau verða svipsterkari ef ég mála þau aðeins í kring.    Þá verð ég ánægðari með mig.

Ég nota varalit svona á 2ja ára fresti og meik svona 2svar á ári.  Aldrei komist upp á lag með þetta tvennt eða öllu heldur aldrei líkað þetta tvennt neitt sérstaklega og finnst það ekkert gera fyrir mig.

En merkilegt samt að suma daga finnst mér ekkert svona dót ná að gera mig fallega eða ánægða með mig.  Ætli það sé ekki sálarástandið þann daginn sem setur einhverja spéspegla fyrir augu manns....

krossgata, 9.9.2007 kl. 03:08

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Svona er þetta bara Jenný. Stundum finnst mér ég bara ákaflega ljót sama hverju ég smyr í andlitið á mér en aðra daga lít ég á mig allsnakta í framan og finnst ég æði. Kannski eitthvað andlegt dæmi, kannski eitthvað annað. Veit ekki hvort aðrir sjái mun. Best að vera bara ekkert að líta í spegil á off-dögunum.

Laufey Ólafsdóttir, 9.9.2007 kl. 08:14

12 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Stundum fæ ég líka ljótuna.þá er alveg sama hvað ég geri ég er bara hryllilega ljót í framan þegar ég lít í spegil. Svo koma dagar sem ég er alveg hæstánægð með mig og get farið ógreidd og ómáluð hvert á land sem er..alltaf samt fullkædd...og finnst ég bara æðisleg þannig. Held þetta fari mun meira eftir innri líðan hvað maður sér i speglinum hverju sinni. Árhringir finnast mér fallegir...finnst slétt  og árhringjalaust fólk einhvernveginn ekki eins fallegt og það sem ber merki lífsins utan á sér og framan í sér. Svo þú ert gullfalleg Jennsla mín...

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 9.9.2007 kl. 08:14

13 identicon

Ha er tíska í andlitsmálun? Ég hélt að það væri eitthvert leikskóla thing.hahahahahaha. Auðvitað veit ég allt um þetta

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 9.9.2007 kl. 13:10

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er auðvitað í kasti yfir ykkur stelpur, þið eruð svo ógissla skemmtilegar.

Ólína: Fer aldrei út á meðal fólks ómáluð nema í neyðartilfellum og þá opnast himnar, jörð springur og fjöll hrynja

Katrín:  Róleg á samúðinni, ég er ekki svona slæm, er það??

Laufey: Það eru ár og dagar síðan ég upplifði allsnakið fésið á mér sem fagurt.  Þú ert UNG æmtellingjúvúman.

Birna Dís: Vildi óska að þetta væri pistill um leikskólanámskeið, en því miður, tíska í förðun er gígantískt mikilvæg.

Krossgata:  Þú ert huguð kona og ég dáist að þér

Rebbý: Þetta er allt spurning um góðan ásetning til að sætta sig við orðin hlut.  Muha

Jenný Anna Baldursdóttir, 9.9.2007 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 2985742

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband