Leita í fréttum mbl.is

FYRIRSAGNIR DAUÐANS

Ég veit ekki með ykkur en ég persónulega upplifi það sem andlegt ofbeldi af verstu tegund, þegar ég í sakleysi mínu (okokok, ekki sakleysi, köllum það bjartsýni) ráfa um forsíðu Moggabloggs, til að lesa ódauðlegar færslur sem þar eru innanborðs og þarf að reka augun í eftirfarandi:

Fósturvíg,

Fósturdeyðing,

Dauði og djöfull (segi svona), ladídadída.

Getur þetta Harmageddon fólk ekki verið í lokuðum klúbbum sem eru bannaðir fólki með heilbrigða skynsemi, svo að enginn ráfi inn á þessi ósköp alveg óvart eins og ég gerði í byrjun? 

Við hin gætum þá haldið áfram að syndga í friði.

Ekki fyrir Guði heldur fyrir mönnum.

Nú sting ég höfðinu í sandinn.

Ég held nú það.

Úje

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Flott mynd af kallinum að stinga hausnum í sandinn Annars gera þessar fyrirsagnir það að verkum að ég fletti framhjá. Nenni ekki að láta predika yfir mér  

Laufey Ólafsdóttir, 2.9.2007 kl. 12:44

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eina örugga ráðið sem við eigum til að láta ekki hafa áhrif á okkur það sem skrifað er hér, er einfaldlega að lesa ekki.  En það fólk sem svona talar gerir það örugglega af innstu sannfæringu um að þau hafi rétt fyrir sér. Við eigum að sýna þeim umburðarlyndi, því þau vita ekki betur.  En við eigum okkar eigið líf til að lifa, og eigum fullan rétt á því að haga því eins og við best vitum.  Meðan við gerum engum mein. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.9.2007 kl. 13:32

3 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Jamm, ég er svo ný hérna að ég hef blessunarlega sloppið framhjá þessu ólánsama öfgafólki...vona að mér hlotnist sú gæfa áfram...Takk fyrir mig...

Bjarndís Helena Mitchell, 2.9.2007 kl. 13:49

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Svona, dragðu nú hausinn upp úr sandinum, og byrjaðu á næstu færslu

Fyrirsagnirnar selja.

Þröstur Unnar, 2.9.2007 kl. 13:51

5 identicon

Sammála Ceisl, meðan við gerum engum mein. En vont er þegar verið er að meiða fólk. Best er þá að fara í meiðyrðamál. En ég er líka að dáðst að myndinni af karlinum. Hún er æði.

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 14:04

6 identicon

Cesil átt þetta að vera. Er farin að skrifa á appletölvuna mína aftur og kann ekkert á hana. Langar samt að læra og held áfram að æfa mig.

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 14:05

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Maður skautar framhjá því sem ekki vekur áhuga, eina rétta leiðin.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.9.2007 kl. 14:13

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

knús til þí Jónína mín.  Gangi þér vel með tölvuna.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.9.2007 kl. 14:17

9 Smámynd: Þröstur Unnar

Sko Ásdís. Maður skautar ekkert framhjá þessum færslum, þó þær séu með (sumar hverjar) viðbjóðslegar fyrirsagnir, það sést á teljurum þessara síðna. Ekki segja að það sé bara fólk með annarlegar hvatir sem skoði þær, því það held ég sé ekki rétt. Það er af einskærri og meðfæddri forvitni vorra mannanna sem fyrirsagnirnar leiða okkur inn á síður sem innihalda stundum ekki neitt, nema ógeðslega fyrirsögn.

Sammála fyrirsögn Jennýjar, og vil gera henni upp aðra ástæðu í viðbót við bjartsýni, sem knúði hana áfram á vefrápinu "forvitni".

Já Jenný, just súmí.

Bara hux á lyklaborðið.........

Þröstur Unnar, 2.9.2007 kl. 14:28

10 identicon

Ég er svo heppin að eitthvað í stýrikerfinu í hausnum á mér segir block og temporarily blind eða eitthvað álíka þegar þessi harmageddon blogg dúkka upp á moggabloggsíðunni - þessar færslur fara sem sagt framhjá mér ... vonandi virkar kerfið sem lengst þannig.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 14:56

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þröstu hvað ertu að meina nákvæmlega?  Heldurðu að ég sé að skrifa fyrirsagnir í annarlegum tilgangi eða hvað?

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.9.2007 kl. 16:37

12 Smámynd: Þröstur Unnar

Nei Jenný. Hvernig færðu það út?

Þröstur Unnar, 2.9.2007 kl. 17:21

13 Smámynd: Þröstur Unnar

Með því að skrifa :"Ekki segja að það sé bara fólk með annarlegar hvatir sem skoði þær" er ég að svara strax, mögulegu kommenti: " Það er bara fólk með annarlegar hvatir sem skoðar...o.s.frv"

Það hefur ekkert með þínar fyrirsagnir að gera og ég hef ekkert út á þær að setja, enda ert þú að gagnrýna ósiðlegt og ljótt orðaval í fyrirsögnum og er ég þér sammála í því.

Dem alltaf miskilinn................

Þröstur Unnar, 2.9.2007 kl. 18:00

14 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sorrí Þröstur og fljót á mér.  Var að flýta mér og framkvæmdi auðvitað áður en ég hugsaði.  Er búin að ná þessu,  Dem hvað ég er alltaf fljótfær. Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.9.2007 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband