Leita í fréttum mbl.is

DÓMARAÁRÁSIN

 

Dómarinn: Hefur gert lögregluskýrslu.  Hann ætlar að kæra árásarmanninn.  Þetta ætti að gerast átómatískt þegar fólk verður fyrir líkamsárás. Það á ekki að vera í höndum þess sem fyrir ofbeldinu verður hvort ofbeldismaðurinn verður látinn svara til saka með einhverjum hætti eða ekki. 

Ofbeldismaðurinn: Ég bloggaði um hann hér fyrir neðan.  Hann virðist miður sín yfir árásinni og það er alveg eins og það á að vera.  Maðurinn viðurkenndi í sjónvarpinu í gær að eiga við vandamál að stríða og var greinilega miður sín yfir því.  Það verður honum væntanlega til hjálpar að þurfa að taka afleiðingum gjörða sinna.  Það er fyrsta skrefið, að viðurkenna vandamálið og væntanlega verður þessi atburður og eftirleikurinn, til þess að maðurinn gerir eitthvað í sínum málum.

Ofbeldi er alltaf að verða ljótara og alvarlegra. Það má sjá í fréttum nánast daglega og um helgar skella á eyrum okkar nýjar fréttir af meira ofbeldi og fleiri fórnarlömbum.  Ég veit ekkert um hvort ofbeldi var meira en núna í denn, eins og sumir eru að halda fram.  Það skiptir í raun ekki máli.  Þær lýsingar sem maður sér og heyrir í fjölmiðlum af líkamsárásum eru alveg nógu ljótar og skelfilegar til að kalla á breytingar á því ráðaleysi sem ríkir í kerfinu um þessi mál. 


mbl.is Kærir árásarmanninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góðand daginn ofbeldisfulla kona  nú les maður það svart á hvítu í blöðum morgunsins að þú hafir jarðað Ellý þannig að hún sá sér ekki annað fært en að læsa blogginu sínu. Tekurður þetta að þér?? ég get bent á fleiri sem má henda út, við gætum kannski böggað fólk í sameiningu. 

Ásdís Sigurðardóttir, 31.8.2007 kl. 09:45

2 identicon

Hef heyrt af þessum strák í mörg ár.ca 10 í gegnum krakkana mína. Þetta er langt frá því að vera fyrsti eða annar skandalinn hans, En gott ef hann viðurkennir að hann eigi í vanda. Allir aðrir eru búnir að sjá það síðustu árinn. Batnandi manni best að lifa.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 09:47

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já Jenný mín vonandi að hann  að hann standi við það sem hann sagði í sjónvarpinu.

Kristín Katla Árnadóttir, 31.8.2007 kl. 10:00

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sammála Birna Dís, gott ef maðurinn horfist í augu við sjálfan sig og svo þarf hann að sjálfsögðu að taka afleiðingum gjörða sinna.

Ásdís nú kíki ég í blöðin. Muhaha

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.8.2007 kl. 10:06

5 identicon

Alveg sammála þér Jenný. Svona hættulegt fólk á að loka inni, annað hvort í fangelsi eða geðveikrahæli, eftir því sem við á. Svo hefði þurft að taka lyfjapróf af manninum. Hann hefur kannski verið á amfetamíni eða sterum. Það er ekki hægt að líða það, að þessi maður ráðist á saklaust fólk hvað eftir annað og segi svo eftir á, að sér þyki það leitt. Fólk, sem fyrir svona verður, getur þurft að líða fyrir það alla ævi. Ekki bara líkamlega, heldur líka andlega. Ég skil ekkert í Eiði Smára að kæra ekki líka. Það er engum greiði gerður, með því að hlífa svona mönnum.

Stebbi (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 10:42

6 identicon

Flott færsla. Málið er að fólk taki ábyrgð á gjörðum sínum. Fínt að hann sjái eftir því að hafa beitt ofbeldi og átti sig á vandanum. En við vitum að t.d. alki fyllist undantekningalaust miklum móral þegar hann hefur gert eitthvað af sér undir áhrifum. Það þarf samt ekki að þýða að þar með sé hann hættur. Við skulum vona að þessi drengur sé tilbúinn að viðurkenna vandamál sitt líka á borði, ekki bara í orði. Ég trúi því að það að kæran gangi alla leið sé líklegra til að fá hann til þess heldur en t.d. það að hún yrði felld niður.

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 13:19

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe!

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.8.2007 kl. 13:47

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ég sá ekki þáttinn í gær. Hann viðurkennir að eiga við vandamál að stríða. hvað þýðir það? Er hann eitthvað veikur á geði eða tæpur á tauginni? Afhverju er hann þá ekki skikkaður í einhverskonar meðferð eða kemur sér sjálfur í hana?

Sammála. Ofbeldið sem við heyrum nú orðið um á hverjum degi er svakalegt.

Jóna Á. Gísladóttir, 31.8.2007 kl. 13:48

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég held að hann hafi verið að viðurkenna að hann réði ekki við sig, sem er auðvitað ekki hægt ef fólk ætlar að dveljast meðal manna. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.8.2007 kl. 16:00

11 identicon

Vonandi var þett alvöru iðrun en ekki bara tæknileg. Við viljum ekki fleiri tæknilega iðrandi skíthæla.

Tilhvers er annars verið að draga þennan ræfil í sjónvarpið.

Það virðist vera alveg sama hvað gerist í boltanum, sama hversu ómerkilegt það er, þá halda fjölmiðlarnir að öll þjóðin brenni af áhuga.  Kastljós og Ísland í dag eru aumir þættir, ekkert annað en ljósakaútgáfan af Séð og heyrt. 

sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2985718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband