Leita í fréttum mbl.is

HALLOKI VIKUNNAR

Stundum þegar horft er á fréttatengda þætti á báðum stöðvum, verður manni ljóst að samkeppnin er mikil, á milli stöðva, og ábyggilega mikið á sig  lagt til að ná heitustu málunum til umfjöllunar, hverju sinni.  Ísland í dag reið á vaðið og hæpaði upp viðtal sem var sýnt eftir fréttirnar við manninn sem réðst á dómarann og Sveppa en ekki á Eið Smára.  Það kom fram að maðurinn yrði ekki í mynd því hann vildi ekki þekkjast úti á götu. Ég skildi það vel.  Með þetta á bakinu er maður kannski ekkert að flagga sjálfum sér.

Svo kom Kastljósið.  Þeir voru líka með viðtal við sama mann.  Ég hugsaði með mér að þetta væri nú smá kjánalegt að vera með viðtal um sama málið, við sama manninn á báðum stöðvum.  Til að gera langa sögu stutta þá snarsnérist ég í skoðun minni.  Kastljós var með manninn í mynd, hálftíma eftir að hann gat ekki sýnt á sér andlitið á Íslandi í dag.  Á þessum hálftíma hafði maðurinn líka gjörbreytt um hugarfar gagnvart ofbeldinu sem hann beitti.  Í Íslandinu var hann svona í hortugri kantinum, en játaði þó að hafa gert rangt.  Þegar hann var kominn í Kastljós hafði maðurinn heldur betur séð að sér og var miður sín yfir verknaðinum og var satt best að segja, nokkuð viðkunnanlegur.

Þarna fór Kastljósið með sigur af hólmi.

Ísland í dag er því halloki vikunnar - bigtime og þeir eru í skuld við okkur áheyrendur.  Komasho


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Kannski að hann hafi virkilega fengið móral eftir Stöð2 þáttinn og ákveðið í millitíðinni að gerast opinberlegur iðrunarmeistari.

Þröstur Unnar, 30.8.2007 kl. 20:51

2 identicon

Verð nú bara að segja að mér finnst Kastljósið alltaf vera skemmtilegra en Ísland í dag.

Bryndís R (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 20:56

3 Smámynd: Guðný GG

er þetta ekki spurning um að vera bara samkvæmur sjálfum sér ? gæinn fær væntanlega sjokk þegar hann áttar sig á þessu bulli  í sjálfum sér .,náttlega fyrir utan það hvernig hann er búinn að haga sér ...sá reyndar hvorugan fréttatímann by the way  

Guðný GG, 30.8.2007 kl. 20:58

4 identicon

Bara sorglegur náungi.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 30.8.2007 kl. 20:58

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Dapurt að vera svona ruddi. Hann þarf "anger management" námskeið.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.8.2007 kl. 21:40

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kjarni málsins er nú samt munurinn á nálgun hjá Kastljósi annars vegar og Íslandi í dag, hins vegar.  Þeim hjá Kastljósi virðist hafa tekist að ná betri kontakt við náungann.  Það var betri umfjöllun einfaldlega.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.8.2007 kl. 22:19

7 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég hef verið að uppgötva á síðustu vikum að RUV er hreint ekki svo galið. Kannski er ég að verða gömul...

Brynja Hjaltadóttir, 31.8.2007 kl. 08:44

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Brynja mín, ég er alveg sammála þér, amk. nú um stundir hugnast mér oftar og oftar, efni sjónvarpsins.  Ætli þetta sé ekki þroskamerki hjá okkur báðum.  Og svo sýnist mér Kastljósið fara af stað núna eftir sumarfrí í rífandi stemmingu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.8.2007 kl. 09:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.