Leita í fréttum mbl.is

ÉG ER "MEAN" OG ÉG VEIT ÞAÐ!

..Ég er kvikindi, það krimtir í mér af gleði þegar ég hugsa um hver viðbrögð reykingarfólks á djamminu verða í vetur, þegar það þarf að standa úti í frosti/snjóbyl/stórhríð með storminn beint í andlitið.  Minni á veturinn í fyrra.  EKKI góður til útivistar. Ég er að vona að fólk sitji einfaldlega heima.  Það verður þá kannski til að þessi ólög verða endurskoðuð.  Kvikindisskapur minn beinist því að stjórnvöldum sem fá vonandi að finna fyrir því í gegnum óánægða veitingamenn.  Hví í ósköpunum geta þeir ekki fengið að ákveða hvernig þeir haga sínum rekstri?

 Ég held að þessi illkvittni í mér komi til vegna þess að ríkið selur mér sígarettur, og það á uppsprengdu verði.  Við sem reykjum erum nikótínfíklar svo einfalt er það.  Sígarettur eru dýrari hér en á öllum hinum Norðurlöndunum svo dæmi sé tekið.  Svo setur ríkið lög sem gera reykingamenn að annars flokks borgurum, þar sem þeim er hvergi vært.  Engar málamiðlanir eins og reykherbergi eru á borðinu. Rosalegur tvískinnungur verð ég að segja.

Nú er komið smá babb í bátinn.  Að gefnu tilefni vill embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu vekja athygli á ákvæði 3.mgr.19.gr. áfengislaga sem bannar með öllu að áfengi sem selt er á veitingastað sé borið þaðan út af gestum staðarins eða öðrum.

Æ en leiðinlegt.  Hvað gerir fólk núna?  Skutlar í sig drykknum, hleypur út og reykir og aftur inn í biðröðina á barinn og svo út aftur? Voða flókið orðið að fara á djammið.  Eða á kaffihús eða....???

Eins og ég segi þá bíð ég spennt eftir vetrarveðrunum. 

Bætmí.

 


mbl.is Bannað að taka drykki með sér út af veitingastöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég skil nikótínfíkla voðalega, voðalega vel, er óvirkur nikótínfíkill sjálf eins og þú manst líklega frá fyrri bloggfærslum á síðunni minni. Mér finnst algjörlega nauðsynlegt að reykingafólki verði sköpuð aðstaða til að reykja en bara ekki ofan í hina og ekki þannig að lyktin berist á milli. Dóttir mín sem hefur gaman af því að kíkja út um helgar er alsæl eftir reykingabannið, sérstaklega það að þurfa ekki að þvo hverja flík eða setja hana í hreinsun eftir stuttan rúnt um skemmtistaðina. Hún er líka hætt að vakna með særindi í hálsinum daginn eftir skemmtistaðaferð.  

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 18:38

2 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

bætmítú...hahaha

Brynja Hjaltadóttir, 31.7.2007 kl. 18:46

3 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

sammála sammála sammála, vona að mín ástkæra þjóð verði ekki eins bitlaus í þessu og í öðrum órétti og valdníðslu:) af hverju má ekki reka reykingastaðinn þar sem bara reykingafólk kemur saman, fólk fær aðeins vinnu á barnum ef það reykir og svo geta þeir sem reykja ekki átt sína staði og allt í fínu með það.

Birgitta Jónsdóttir, 31.7.2007 kl. 18:52

4 Smámynd: Ólafur Guðmundsson

Ég hef nákvæmlega enga samúð með reykingamönnum! Af hverju er fólk að byrja á þessu? Kostirnir á því að byrja að reykja eru nær engir á meðan að ókostirnir eru óteljandi og þetta reykingarbann bætir við einum ókostinum. Þetta er því fín forvörn fyrir þá sem eru að reyna að byrja að reykja. Krakkar sjá hvað bíður þeirra þegar þau horfa á veðurbarið og rennblaut fólkið sjúga að sér reykinn. Fólk á einfaldlega að hætta þessari vitleysu.

Ólafur Guðmundsson, 31.7.2007 kl. 19:04

5 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Ég stend með þér í þessu ..... stíg ekki fæti in á skemmtistaði né kaffihús fyrr en þessu verður breytt ..... aftur!

Annars kaupi ég sígarettukartonið hérna úti á heilar 1400 kr....... bæt mí

Eva Þorsteinsdóttir, 31.7.2007 kl. 19:13

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég skil að sjálfsögðu þarfir þeirra sem ekki reykja.  Það eru líka margir sem reykja en þola ekki við á reykmettuðum stöðum.  Ég þar á meðal.  En ég vil geta brugðið mér afsíðis í LOKAÐ RÝMI (með hurð ekki tjaldi) og sinnt minni fíkn. 

Eva you just bit me.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.7.2007 kl. 19:30

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Ólafur....Copy-Past breytt.

Ég hef nákvæmlega enga samúð með drykkjumönnum! Af hverju er fólk að byrja á þessu? Kostirnir á því að byrja að drekka eru nær engir á meðan að ókostirnir eru óteljandi og þetta drykkjubann bætir við einum ókostinum. Þetta er því fín forvörn fyrir þá sem eru að reyna að byrja að drekka. Krakkar sjá hvað bíður þeirra þegar þau horfa á veðurbarið og rennblaut fólkið sjúga að sér drykkinn. Fólk á einfaldlega að hætta þessari vitleysu

Þröstur Unnar, 31.7.2007 kl. 19:54

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þessi boð og bönn hafa aldrei skilað neinu nema ef til vill því að fara í kringum lögin.  Það verður meira spennandi eftir því sem bönninn verða fleiri.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.7.2007 kl. 20:03

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góður Þröstur Unnar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.7.2007 kl. 20:21

10 Smámynd: Ólafur Guðmundsson

Þröstur Unnar.

Það er engan veginn hægt að leggja áfengisdrykkju og reykingar að jöfnu þó vissulega eiga þessir hlutir margt sameiginlegt. En það er þín skoðun og hana ber að virða.

Reykingar: Stór hluti reykingarmanna (kannski 90%) vill hætta að reykja og hefðu aldrei byrjað á því ef að þeir stæðu frami fyrir þeirri ákvörðun í dag.

Áfengisdrykkja: Minni hluti "drykkjumanna" (kannski 10-30%) vill hætta að drekka áfengi og  hefðu aldrei byrjað að á því ef að þeir stæðu frami fyrir þeirri ákvörðun í dag.

Reykingar: Það er fyrir löngu sannað að það er engum manni holt að reykja tóbak í hvaða magni sem er.

Áfengisdrykkja: Hófleg áfengisdrykkja er ekki skaðleg og er jafnvel holl.

Reykingar:  Eru oft til mikils ama  þinna meðborgara sem lýsir sér í ólofti og sóðaskap

Áfengisdrykkja: Hófleg áfengisdrykkja er sárafáum ef nokkrum til ama.

Og síðast en ekki síst það sem er meginmarkmið þessa reykingarbanns.

Reykingar: Óbeinar reykingar eru skaðlegar heilsu annarra

Áfengisdrykkja: Hófleg "óbein áfengisdrykkja" er sárafáum ef nokkrum skaðleg.

Vissulega er  það auðvelt fyrir mig að segja við fólk að hætta bara að reykja. En ég legg þetta ekki að jöfnu.

Ólafur Guðmundsson, 31.7.2007 kl. 20:53

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já liðið verður að læra að teyga bjórinn í einum sopa...það skilur enginn heilvita maður glasið sitt eftir inni svo brjálæðingar geti laumað í drykkin smjörsýrum og öðrum ófögnuði...þetta er nú bara meira vesen þegar upp er staðið..ha???

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 31.7.2007 kl. 21:20

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Bíð spennt eftir vetrinum! Virði 100% rétt þeirra sem reykja ekki en finnst stórlega brotið á réttindum reykingamanna og veitingamanna með því að leyfa ekki lokað rými á veitingahúsum. Undanfarin ár hafa forvarnirnar beint að því að allir eiga að fyrirlíta reykingamenn og þeir geti bara hunskast til að hætta þessum óhollu reykingum. Þetta virkar bara ekki á reykingamenn. Hef heyrt að ógeðsleg líkamsfýla (sviti og fleira óprenthæft) sé yfirgnæfandi á börum og skemmtistöðum núna. Langar sko ekkert á djammið. 

Guðríður Haraldsdóttir, 31.7.2007 kl. 23:04

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Við reykingarmenn erum sko með överskott af umburðarlyndi gagnvart þeim sem ekki reykja.  Hvernig væri að við fengjum smá skilning frá þeim?  About time, einhver?

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.7.2007 kl. 23:09

14 Smámynd: E.R Gunnlaugs

ég er rosa fegin að hafa losnað við reykingarpúkan eins og er, vona bara að það endist. En væri samt alveg til í að sjá okkur taka Norrmenn (amk í Bergen) til fyrirmyndar því þar var ljúft að fara út að reykja í vondu veðri því það var svo vel um okkur búið!

E.R Gunnlaugs, 31.7.2007 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2985719

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband