Leita í fréttum mbl.is

LÉLEGUR HÚMOR

Mikið rosalega fannst mér hallærislegt að sjá í fréttatímasjónvarpsins, sviðsetningu á þrælauppboði í Alsír, í tilefni þess að 380 ár eru liðin frá Tyrkjaráninu ógurlega, í Vestmannaeyjum.  Flott að minnast þessara tímamóta en aðgerðin gjörsamlega misheppnuð þar sem öllum fannst uppboðseftirlíkingin svo rosalega sniðug og skemmtileg.

Í fyrsta lagi hafa aldrei verið haldin þrælauppboð af Tyrkjum í Vestmannaeyjum.  Í öðru lagi þá er mansal, uppboð á fólki og annar óþverraháttur, jafn grafalvarlegt mál í dag og það var dagana ógurlegu þegar Tyrkir fóru um Vestmannaeyjar rænandi og ruplandi.

Bendi á reisubók Guðríðar Símonardóttur eftir Steinunni Jóhannesdóttur, sem er vissulega skáldsaga en byggð á traustum heimildum.

Ég, í böðulsbúningnum með þrælapískuna.


mbl.is Tyrkjaránsins minnst í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sammála þér núna!

Hrönn Sigurðardóttir, 16.7.2007 kl. 14:42

2 identicon

Já manni fannst óviðeigandi að grín hafi verið gert að svo hörmulegum atburði...

DoctorE (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 14:42

3 identicon

Er þetta ekki einum of mikil viðkvæmni.  Þarna var á ferðinni nokkurs konar leikrit.  Þið megið ekki hella svo úr eyrum af hneykslan að þið ruglist algjörlega !

Eyjapeyji (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 15:40

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er nú ekkert rosa hneyksluð sko, fannst þetta bara hallærisleg nálgun á afar merkilegri sögu sem tengjast Eyjum og þarna var af nægu að taka.  Bara sollis sko!

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.7.2007 kl. 15:56

5 identicon

Sammála þé rmeð að þetta sé lélegur húmor. Að halda uppá hörmungaratburð eins og um gleðiatburð hafi verið að ræða.  Það er full ástæða til að muna eftir atburðum sem þessum en þá þarf það líka að vera undir réttum formerkjum og fara rétt með atburði.

Helgi Georgsson (IP-tala skráð) 16.7.2007 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.