Leita í fréttum mbl.is

ARG, HREFNUVEIÐAR AÐ HEFJAST AFTUR

Rosaleg tregða er þetta.  Af hverju er þessum fáránlegu veiðum ekki hætt?  Það stendur í fréttinni að eftirspurn eftir kjötinu sé mikil, að mér skilst hér innanlands.  Góðan daginn, sé Íslendinga í anda úða í sig 34 stykkjum af Hrefnu.  Það eru einhverjir örfáir sérvitringar og svo Japanir sem borða þetta kjöt.

OMG við verðum að hugsa um "immidsið".


mbl.is Hrefnuveiðar hefjast aftur í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

var að skella uppskrift á bloggið hjá mér handa þér krúttið mitt. Ekki Hrefnukjötsuppskrift samt heldur laxa. Hvenær er svo matur?

Jóna Á. Gísladóttir, 11.7.2007 kl. 17:35

2 identicon

hah ég vinn í nóatúni og það er fullta f fólki sem kaupir hrefnu kjöt.

Farðu nú að hugsa áður en þú skrifar. Og prófaðu hrefnukjöt það er helvíti gott

g (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 17:40

3 Smámynd: Ester Júlía

Verð að vera hundrað prósent sammála þér!  Hvaða rugl er þetta?  Eru þessar veiðar alls þessa vesens virði? ..Heimurinn brjálaðir út af hvalveiðum okkar? 

Og eru allt í einu allir farnir að borða hval?  

Ester Júlía, 11.7.2007 kl. 17:41

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ok g þá étið þið Hrefnukjöt í Nóatúni.  Ég hugsa alltaf áður en ég skrifa og ég, minn kæri/kæra skrifa undir nafni. Frusssssssssssssssssssss

Tékka á uppskrift.

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.7.2007 kl. 17:53

5 identicon

Hvaða, hvaða. Ekki er ég að blogga einhvert ergelsi mitt yfir ólívuræktun en samt hef ég mikla óbeit á því grænmeti/ávexti(alveg sama).

Sjálfur hef ég aldrei smakkað hrefnukjöt enda ekkert slíkt að fá hér í Eyjum. Ég verð nú samt bara að segja eins og er að ég er eindrægur stuðningsmaður hvalveiða og myndi glaður vinna við það, aftur, ef eitt stykki hvalveiðiskip væri gert út héðan. (Og ef ég væri ekki sjóveikur bóndapeyi að norðan)

Allt vel upplýst fólk veit að þetta eru fullkomlega sjálfbærar veiðar og varla hægt að finna í veröldinni auðlindanýtingu sem hefur minni áhrif á auðlindina eins og hvalveiðar Íslendinga eru. Og það er oftast upplýst fólk sem kýs að ferðast til Íslands.

Og hananú!

Bjarni Ben (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 18:51

6 identicon

Voða eruð þið sósíalískar...  Bara banna allt sem er ekki "þjóðarhagur".

Ef það er ekki markaður fyrir þetta þá ætti það að falla á sjálfu sér á nokkrum árum. 

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 19:03

7 Smámynd: Rebbý

Hrefnukjötið er hin besta "nautasteik" sé hún rétt unnin
Kíkið bara á steikina hjá Nóatúni og skellið á grillið eða ef þið viljið hana matreidda fyrir ykkur þá eru flott Hrefnuspjót hjá Sægreifanum til boðs.

Rebbý, 11.7.2007 kl. 22:39

8 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

nei það er ekki gott, fékk það einu sinni í matarboði, var ekki sagt fyrirfram hvað væri á boðstolum,  þannig að ég ætla mér ekki að kaupa það eða elda.

Sædís Ósk Harðardóttir, 12.7.2007 kl. 00:48

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég kaupi það aldrei, borða það aldrei og sama gildir um annan viðbjóð eins og lýsi.  Ég æli krakkar!

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 00:58

10 Smámynd: Sigurður Jökulsson

Ástæðan fyrir því að enginn var að borða hrefnukjöt fyrir nokkrum árum var af því að það voru engar veiðar og þ.a.l. ekkert kjöt, nema einstaka hvalir sem flæktust í net. Þegar framboðið er komið, þá kemur listin fyrir kjötinu aftur. Ekki er mikið um kengúruát heima er það? enda lítið um kengúruveiðar á klakanum (fínasta kjöt samt). kannski smá útúrdúr, en ástæðan að fólk telur að enginn sé að borða kjötið er af því að það var ekki hægt frekar en neitt annað. Veit reyndar ekki hve vinsælt það var fyrir veiðibann, ég var bara polli þá...

Smá misskilningur hjá þér að líkja þessu við lýsi, það er fiskur, þetta er spendýr... rautt kjöt meiraðsegja. 

Sigurður Jökulsson, 12.7.2007 kl. 08:20

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég líkti þessu ekki við lýsi, heldur er lýsisbragð af hvalkjöti.  Þess vegna finnst mér það ólystugt en játa hér fordóma mína út í kjötið. Auðvita má fólk borða þetta kjöt ef það vill en mér finnst ekki að það eigi að fórna meiri hagsmunum fyrir minni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.7.2007 kl. 08:36

12 identicon

"það eigi að fórna meiri hagsmunum fyrir minni."

Ferðamannageirinn heldur áfram að blómstra hratt eins og árin á undan hvalveiðunum, ekkert vandamál þar. Hvaða hagsmuni ertu að tala um?

Annars eru það miklir hagsmunir almennt að hafa hér atvinnufrelsi. 

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 08:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 2985734

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband