Leita í fréttum mbl.is

LIVE EARTH OG ÉG BÚIN AÐ HLUSTA....

1

..frá því þeir störtuðu án þess að kæra mig nokkurn skapaðan hræranlegan hlut um það.  Það er einhver góðhjartaður nágranni minn, sem hefur haft allt í botni í kvöld, opið út á svalir og brumm, brumm, ég get vitnað um það hér að það er of mikill bassi í græjunum hans.  Var á tímabili, þegar ég var að biðja bænirnar mínar (hm) að hugsa um að fara og "lókalisera" hljóðið, en þar sem þarna er rokkað fyrir rétt málefni, þá lét ég það eiga sig.

Alltaf skemmtilegra og skemmtilegra að lesa Moggafréttirnar.  Í þessari frétt er talað um AL GORE, FYRRVERANDI FORSETA BANDARÍKJANNA. Hef ég misst af einhverju.

Þetta er nottla smá snúrublogg um músík, því ég hef þurft að liggja á hnjánum með æðruleysisbænina á vörum meðan ósköpin gengu yfir.  Ég held að granninn sé farinn að sofa.

Úje, úje!

 

 


mbl.is Live Earth tónleikarnir byrjaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Textahöfundar eru léttir á því þessa dagana og fara frjálslega með staðreyndir. Var einmitt að pæla hvort Jenny Una fær í heimsókn. Vona að þér líði vel í hnjánum. 

Ásdís Sigurðardóttir, 7.7.2007 kl. 23:47

2 Smámynd: krossgata

Al Gore er víst einn af upphafsmönnum tónleikanna eða skipuleggjandi eða eitthvað slíkt.  Hann birtist óvænt (afar spennandi) á sviði einhvers staðar, sem heilmynd og flutti ávarp.  Sonur minn hefur horft og hlustað á þetta í allan dag af staðfestu, enda unglingur.

krossgata, 8.7.2007 kl. 00:13

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Já en fyrrverandi forseti.  Kommon, hvað hefur Clinton gert af sér.  Var hann þá varaforseti og ég misskilið þetta allt?  Híhí.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 00:14

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

I did not have a sexual relationship with this woman

Jóna Á. Gísladóttir, 8.7.2007 kl. 00:35

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jeræt lessan þín (kast).

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2007 kl. 00:36

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhahahahah, já, hvenær var Al Gore forseti? Eitthvað farið fram hjá mér líka.

Guðríður Haraldsdóttir, 8.7.2007 kl. 01:02

7 Smámynd: krossgata

Þetta forsetamál fór alveg framhjá mér (það þó það sé með fitubolluletri). *Roðn*

krossgata, 8.7.2007 kl. 02:04

8 identicon

Það er einmitt soldið fyndið hvernig hann kynnir í myndinni An Inconvinient Truth, eða þarnaá fyrirlestrinum...
"Good evening, my name is Al Gore and I used to be the next president of the United States"...
Allt í góðum húmor, off kors.

Maja Solla (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 2985734

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband