Leita í fréttum mbl.is

HÁLF MÁTTLAUST GLEÐIEFNI

1

..að einkadans skuli bannaður frá og með 1. júlí n.k.  Auðvitað fagna ég því að það skuli ekki lengur leyfilegt að stunda vafasama gjörninga í hálf-lokuðu rými en alveg er ég viss um að eigendur nektardansstaða eru búnir að finna sér leið kringum þetta eins og áður hefur verið gert þegar reynt hefur verið að koma í veg fyrir vændi og misnotkun á þeim konum sem á þessum klúbbum starfa.  Ég æti trúað að þessi forvinna hafi gengið undir vinnuheitinu "hvernig taka á löggjafann í afturendann" eða eitthvað í þeim dúr.


mbl.is Einkadansinn líður undir lok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Júlía

Því miður er það nú oft þannig að það sem er bannað er mest spennandi.  Eins og þú segir þá eru eigendur nektardansstaða örugglega búnir að finna sér leið í kringum þetta.  Eða þá að hægt verður að kaupa ólöglegan einkadans í bakherbergi á múltímonní. 

Ester Júlía, 24.6.2007 kl. 20:52

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Vændi var lögleitt með öllum greiddum atkvæðum á alþingi nú í vetur en nú má ekki dansa?  Þetta eru villandi skilaboð, þegar nýbúið er að hvetja konur til að afla tekna með því að selja líkama sinn er þeim hinum sömu bannað að dansa.

Ester Sveinbjarnardóttir, 24.6.2007 kl. 21:12

3 identicon

Já, skiptar skoðanir um þetta greinilega. Hvað á að leyfa og hvað ekki.
Bara eins og með Moggabloggarana...

Maja Solla (IP-tala skráð) 24.6.2007 kl. 21:21

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vonum að þetta skili einhverju en hrædd er ég um að ekki batni ástandið hjá blessuðum konunum sem eru seldar til vændis og dansa.

Ásdís Sigurðardóttir, 24.6.2007 kl. 21:29

5 Smámynd: Jens Sigurjónsson

sennilega verður þetta meira neðanjarðar bisness eftir að þetta verður bannað.

Jens Sigurjónsson, 24.6.2007 kl. 21:45

6 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Mér finnst undarlegt að á okkar tímum skuli fólk telja það sjálfsagt að vændi sé atvinnugrein.  Það segir mér aðeins hversu almenn kvennfyrirlitning er í þessu landi.  

Ester Sveinbjarnardóttir, 24.6.2007 kl. 21:52

7 Smámynd: Baldvin Mar Smárason

Ester, ég veit ekki hvort að þú munir það, en það komu herramenn til íslands og fylltu broadway af konum.

Þessi herramenn hétu chippendales og voru stripparar

Á þeim tíma átti ég ekki orð yfir því hverskonar karlfyrirlitnir ætti sér stað hjá Íslenskum konum.Enn sá ósómi hjá íslensku kvennþjó

Þú verður að hætta að tala um Ykkur konur. Þú átt ekkert sameiginlegt með einhverjum strippar, þó svo að þið séuð báðar konur.

Ekki tala ég um okkur karla.

Þó svo að einhver fari að horfa á konu stripplas, þá þýðir það ekki að sá sami geti ekki haft þig sem yfirmann og virt þig alveg 100%.

En ég átta mig á því að það eru ekkert allir að átta sig á því.

Baldvin Mar Smárason, 25.6.2007 kl. 03:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.