Leita í fréttum mbl.is

GEIRJÓNA KOMIN TIL AÐ VERA?

22

Samkvæmt Mogganum í dag er líklegast að stjórnin sitji áfram.  Þokkagyðjan Geirjóna ætlar að halda áfram að stjórna landinu þrátt fyrir að vera alvarlega löskuð öðum megin.  Ég öðlaðist fíflalega trú á mannkynið eftir að Jón Sig. sagði að ekki kæmi til greina fyrir Framsókn að fara í stjórn eftir að hafa goldið þetta afhroð á laugardaginn.  Nú er ég að tapa henni aftur.  Ríkisstjórnin hefur ekki meirihluta þjóðarinnar á bak við sig og ef rétt reynist þá ætlar Geir Haarde að blása á beiðni stórs hluta þjóðarinnar um breytingar.  Skömm er að ef rétt reynist.  En Mogginn segir frá þessu og ekki dettur nokkrum í hug að hann sé að fara með fleipur? 

Geirjóna er komin til að vera og hún blæs á það hvort hún sé velkomin til dvalar eður ei.  Þessi kvensnift er með þeim þrásetnari kjéddlingum sem ég þekki.


mbl.is Líklegast að stjórnin sitji áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já og sú á eftir að fitna á þjóðarbitanum.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 09:32

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Morgunblaðið sagði líka að það væri hroki Ingibjargar sem kæmi í veg fyrir S + D.

Maður hélt að þetta bull hennar um sigur Samfylkingarinnar í kosningunum væri bara þetta venjulega froðusnakk en því miður þá virðist hún trúa því að S hafi unnið sigur og rökstyður það með því að útkoman var betri en einhver skoðanakönnun sýndi einhvern tíma með sömu röksemdarfærslu þá töpuðu Vg kosningunum.

Grímur Kjartansson, 14.5.2007 kl. 09:36

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kæri Grímur rólegur í túlkununum.  VG töpuðu engum kosningum, þeir unnu góðan sigur.  Hvað Samfylkinguna varðar þá ætla ég mér ekki að fara að túlka eitt eða neitt varðandi hana.  Hroki Ingibjargar hvað?  Hvenær reyndi á hann?

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 09:41

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég bara trúi þessu ekki. Oft hefur nú verið skitið yfir okkur en það verður nýtt met ef stjórnin starfar áfram. Eru ekki einhver lög gegn þessu. Afhverju var verið að eyða peningum í þessar kosningar? Við hljótum að geta gert eitthvað. Það versta er að fullt af fólki sem kaus D er nákvæmlega sama svo framarlega sem Sjálfstæðisflokkurinn stjórni áfram. Aaarghhh.................................

Jóna Á. Gísladóttir, 14.5.2007 kl. 10:07

5 identicon

Ég held að ef þessi „ályktun“ Moggans gengur eftir sé það til marks um að vanmáttur þjóðarinnar þegar kemur að því að hafa áhrif á framtíð landsins er orðinn algjör. Annars er bara ein athugasemd sem ég geri við þessa færslu:

Fyrirbærið heitir GEIR JÓN. Mér finnst eiginlega ekki mega kvenkenna það, því að SVONA MYNDU KONUR ALDREI FARA MEÐ VÖLD!

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 10:17

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Anna mín ég geri það sjaldan að gamni mínu að kvengera karlægan ósóma.  Stjórnin er kvenkyns og því varð kjéddlingin Geirjóna til.  Það er hins vegar alveg hárrétt hjá þér að svona fara konur ekki með vald.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 10:24

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það er nú ekki víst að svo fari við sjáum til.

Kristín Katla Árnadóttir, 14.5.2007 kl. 10:30

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mogginn er ágæt heimild um fyrirætlanir stjórarninnar.  En sjáum til.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 10:48

9 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Æ, já betur væri að við hefðum alveg losnað við kerlingarhrotuna.

Steingerður Steinarsdóttir, 14.5.2007 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband