Leita í fréttum mbl.is

MEÐ ÁLIÐ Á BÁLIÐ

898

Úps ég tárast yfir þessari fögru loftmynd af Álverinu í Straumsvík eða þannig.  Rosalega er þetta forljótt, bévítans fyrirkomulag.  En kosningar Hafnfirðinga í dag eru ekki fegurðarsamkeppni í náttúruslysum heldur beinhörð kosning um framtíð okkar allra.  Ég er ein af þeim sem finnst að allir landsmenn ættu að fá að kjósa um hvort þetta skrímsli fái að vaxa eður ei, umhverfismál eru ekki einkamál eins byggðarfélags eða lands ef út í það er farið.  Andrúmsloftir er okkar allra.

Nú er bara að vona að Hafnfirðingjar kjósi á móti stækkun.  Mér var sagt að bærinn væri beinlínis logandi vegna kosninganna.  Það er þó til marks um virkt íbúalýðræði sem er gott mál.  Sagt hefur verið að fylkingarnar séu hnífjafnar.  Þá er bara að bíða úrslita.  Þetta er BARA spennandi.


mbl.is Úrslit í Hafnarfirði gætu legið fyrir kl. 21 til 22
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég vildi óska að ég hefði kosningarétt þarna.  Myndi sko nota atkvæðið mitt til að mótmæla þessu. En við getum krossað putta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2007 kl. 12:21

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta er sko EKKERT spennandi - auðvitað kjósa þeir stækkun. Íslendingar sjá ekkert annað og svo er álverið búið að reka hræðsluáróður!!!!!

hnussssss

Hrönn Sigurðardóttir, 31.3.2007 kl. 13:34

3 Smámynd: halkatla

Sammála! Það er ógnvekjandi að einhverjir ætli að segja já, ég skil það engan vegin...  Pollýannan innra með mér segir að þetta verði slam dunk NEI - en hver veit???

halkatla, 31.3.2007 kl. 14:37

4 identicon

Vonandi segja Hafnfirðingar nei við viljum fá svona atvinnu starfsemi úti á landsbyggðini

Ragnar Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 14:50

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe Ragnar, maður ætti að fara varlega í að óska sér.  Óskir geta haft þann merkilega eiginleika að rætast mæfrend!

Eigum við ekki stelpur að trúa því að maðurinn sé í eðli sínu góður og að góðir hlutir sigra á endanum (eins og í ævintýrunum).

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.3.2007 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.