Leita í fréttum mbl.is

ER ÁTTUN Í GANGI?

92

Gæsluvarðhaldi yfir manninum sem grunaður er um að hafa nauðgað konu á Hótel Sögu nýlega, var í dag framlengt til 9. maí.  Þetta var gert með tilliti til almannahagsmuna vegna alvarleika brotsins.

Það er gott ef lögregluyfirvöld eru farin að hegða sér í samræmi við alvarleika meintra brota.  Oft hefur mér fundist að nóg væri að neita við skýrslutöku til að geta farið heim.  Nú eru hlutirnir kannski að breytast.  Ég fagna því. 


mbl.is Gæsluvarðhald yfir meintum nauðgara framlengt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

kannski kannski, ég vona líka

halkatla, 29.3.2007 kl. 01:06

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hversu lengi komast þeir upp með að segja "hún vildi það líka" alveg þangað til við mætum í serkjum á böllin????

Ásdís Sigurðardóttir, 29.3.2007 kl. 01:50

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

...skil ekki heldur hvað það kemur málinu við að þau þekktust ekki..... það er tekið fram í hverri frétt um málið! Gerir það verknaðinn betri? Eða verri?

Pirrar mig

Hrönn Sigurðardóttir, 29.3.2007 kl. 08:44

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vona bara að það hafi ekkert með málið að gera að maðurinn var af erlendu bergi brotinn.  Heldur vegna alvarleika brotsins.  Já kannski er áttun í gangi, við skulum bara vona það.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.3.2007 kl. 08:52

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

vonandi, vonandi -aå getur varla versnað

ljós til þín

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 29.3.2007 kl. 09:21

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Stelpur við skulum vona að þjóðerni mannsins verði látið liggja á milli hluta og að það verði einblínt á glæpinn en maðurinn er meintur nauðgari þar til búið er að dæma í málinu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.3.2007 kl. 09:40

7 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Sammála þjóðerni skiptir ekki máli heldur alvarleiki brotsins.  Nauðgun er einn hræðilegasti glæpur sem framinn er og því ber að taka á honum sem slíkum.

Sædís Ósk Harðardóttir, 29.3.2007 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband