Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: kvikindiskapur og illt umtal

ÞAÐ MÆTTI BORGA MÉR STÓRFÉ...

1

..og það dygði varla til, til að ég færi og hlustaði á Árna Johnsen.  Ekki misskilja mig, það er ekki vegna pólitískrar fortíðar hans (sem ég hef alveg skoðun á), ekki sú staðreynd að hann er Sjálfstæðismaður, því þeir eru margir ágætis menn, heldur eingöngu af því að maðurinn er vita laglaus, með leiðinlegan músíksmekk en lætur eins og hann sé arftaki Jusse Björling, eða eitthvað.  Ég fæ alltaf kjánahroll.

En því verður ekki á móti mælt að Árni Johnsen er íslenskt fenomen og elskaður af mörgum.

Bara ekki af mér.

Súmí.


mbl.is Fjölskylduhátíð á Stokkseyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VANDRÆÐAUNGLINGUR Á ÞRÍTUGSALDRI

 

Mikið rosalega hljóta aðstandendur svona manns sem er tekin fullur fyrst og svo fyrir óspektir og ofbeldi á sama degi, að eiga bágt.  Einn ofvirkur með einbeittan brotavilja á djamminu.  Öllum til ama og leiðinda auðvitað nema kannski sjálfum sér.

Kannski á maður ekki að vera að tjá sig svona um einhverja persónu en jú ég held bara.  Ekki lét hann sér segjast í fyrra skiptið og kannski tekur löggan hann upp á morgun líka.

Eitthvað pælt í að hætta í víninu karlinn?

Hm....


mbl.is Handtekinn tvívegis sama daginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AF FRÆGU FÓLKI OG ...

 

...ég hef fengið staðfest að það var ekki óráð í mér þegar ég stóð nánast augliti til auglitis við Jodie Foster í fyrradag eins og ég bloggaði um.  Í Blaðinu í dag stendur að hún sé stödd hér á landi með tveimur börnum sínum og maka.  Eldri konan sem ég minntist á er sem sagt konan hennar.

Ekki misskilja mig, ég er ekki svona tryllingslega æst í að hitta frægt fólk en það er svo geðveik upplifun að vera að tjilla niðri í bæ, hér úti á ballarhafi og sjá svo eina af uppáhaldsleikkonunum glápa beint framan í mann.  Það er algjört flipp-fyrirkomulag.

Húsbandið leysir stundum af á leigubílastöð.  Hann hefur keyrt marga "fræga" og síðast TOTO.  Hann kippir sér ekki upp við það þannig að það trufli merkjanlega stóiska ró hans.  Sá eftirminnlilegasti er þó Tarantino sem var vægast sagt áhugaverður karakter (þið lesið um það í æfisögu húsbandsins) en hann gengur aldrei undir öðru nafni hér á heimilinu en "the passanger", eða "farþeginn".  Skrautlegur náungi.  Svo mikið er víst.

Þegar Inga-Lill vinkona mín var hér í síðasta mánuði, hitti hún norska vinkonu sína sem hún hafði ekki séð í nokkuð mörg ár, og hefur engin tengsl við Ísland, niðri í bæ á labbinu bara.  Þær þurftu báðar áfallahjálp.  Á dauða sínum á maður von.  Kannski eru tímarnir svo breyttir að nú geti maður sagt með sanni:  "Allar leiðir liggja til Íslands".

Ég panta næst hitta glæsilegasta mannflak í heimi, eða Keith Richards, þegar og ef ég þarf nauðsynlega að ganga fram á frægt fólk.

Það er aldrei nokkur andskotans friður fyrir þessu liði.

Góður Guð ekki láta Parísi Hilton detta í hug að skella sér í helgarferð til Reykjavíkur.


HEY LITLA MÍN

1

Þessi maður getur sagt "hey litla mín", komist upp með það og meinað það.

Hann heppinn.


mbl.is Hæsti maður heims giftir sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ANSINN AÐ ÉG MISSTI AF ÞESSU!

 1

Búningarnir úr sjónvarpsþáttunum Dallas voru á uppboði í París.  OMG hefði ég fílað eins og einn "eighties" kjól af Sú Ellen, en viprurnar kringum munninn voru örgla ekki á uppboðinu.  Konan sem getur ekki leikið túlkaði samt ótrúlega vel hið blóðuga fórnarlamb mannsins, sem getur hvorki farið - né verið.  Það var óvart leiksigur hjá "hvaðhúnnúheitir".  Einu sinni sagði kona við mig, sem elskaði Dallas og missti aldrei úr þátt, "finnst þér hún Sú Ellen ekki líta mikið betur út eftir að hún hætti að drekka?"  Ég fékk krúttkast á viðkomandi konu.  Að tala um að lifa sig inn í verkið. 

En allavega þá man ég eftir að Súan var oft í flottum drögtum.  Ætli þær hafi staðist tímans tönn eða séu allar með þriggja hæða herðapúðum?  Sjitt, ég kemst ekki að því, ég missti jú af uppboðinu.

Dem, dem, dem


mbl.is Búningar Dallas boðnir hæstbjóðandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞRÍR FENGU AÐ KENNA Á MÉR

1

..í kvöld af því ég er í vondu skapi.  Ég reifst við þrjá aðila einu sinni (sko í sitthvoru lagi) eða reifst ég við einn aðila þrisvar sinnum?  Úff ég er ekki viss um að ég muni það.  Hehe, ég er sem sagt búin að vera frekar pirruð í kvöld og hvað gerir maður þá?  Jú rífst við húsbandið, í símann ef ekki vill betur.  Hann í sínum síma frammi í eldhúsi, ég í mínum inni í stofu.  Um að gera að nota tæknina til samskipta.

Meiri fíflagangurinn í mér.  Ég tuðaði töluvert (reifst ekki beint) þrisvar sinnum á einum klukkutíma.  Af hverju var þetta svona en ekki hinsegin?  Af hverju var soandso alltaf að bögga mig og af hverju eru hlutirnir í eina átt en ekki hina?  Engin svör fengust, ég gafst upp og fór í bað.

Stundum er maður illa stemmdur og eyðir mikilvægri orku í að láta einskis verða hluti fara í taugarnar á sér.  Dálítið vont fyrir mig sem er annars svo fullkomin.  Arg.. Það sem ég er að reyna að segja að mér hættir til að gleyma því hvað mér finnst lífið skemmtilegt og missa mig í vol og víl.  Ég lofa sjálfri mér, hér með, hátíðlega að vera eins og Jenny Una Erriksdóttirrr, "alltaf glöð", "alltaf góð" og "alltaf að skiptast á".  Það er einfaldasta og besta lífsreglan sem ég hef fengið súmmeraða upp með skeið fram að þessu.  Jenny Una sýnir mér á hverjum degi að það virkar.

Lofjúgæs.


KLUKK-KLUKK, ARG

 

Iss hvað ég er ekki í skapi til að láta klukka mig.  Tvær vinkonur hafa slegið mig hvasst í bakið og frussað kvikindislega; klukk Jenny, klukk.  Þær hrossið og beta.  Hm.. Hvað á ég að segja um sjálfa mig sem ég er ekki þegar búin að segja?

1. Ég græt reglulega vegna vonsku heimsins.

2. Ég hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn

3. Ég er hrædd við kindur, hænur, hesta og flest öll dýr nema kisur og hvolpa.

4. Ég er þokkalega hugrökk svona oftast og hendi mér í djúpu.

5. Ég er ótrúlega minnug, upp á gott og vont.

6. Ég læt mig dreyma um að búa í húsi með svefnherbergjum uppi á lofti.

7. Ég elska óveður og myrkrið veitir mér öryggi.

8. Ég er hamingjusamari en nokkru sinni.

Þar hafið þið það.  Ég klukka:

Ásdísi, Zou, Guðnýu Svövu, Gurrí, Evu, Þröst Unnar og Kristínu Kötlu

Og í Guðanna bænum ekki klukka mig meira.  Ég hefði átt að setja þetta í hinar átta játningar en vill ekki að fólk komist að því að ég þoli ekki klukk, keðjubréf og sollis.  Það er svo mikil skuldbinding fólgin í því.

Og þannig standa nú mál krakkar mínir.


LÚSUGT BYRGI

1

Þar sem óhreinindi eru inngróin, þar má oft finna lús.  Ég er ekki hissa á þessum fréttum.

Og nú klæjar mig brjálæðislega í hausinn.

Aumingja Mummi í Götusmiðjunni, fyrst var tekinn feill á honum og Guðmundi vonda (sem ég fæ ekki skilið) og svo þarf hann að þrífa eftir hann og félaga hans sem aftur leiðir til þess að hann getur ekki opnað á tilsettum tíma fyrir skjólstæðinga sína.

Síjúgæs!


mbl.is Skæð lús í fyrrum húsnæði Byrgisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKÚBB

1

Ég var í kvöldbíltúr áðan með húsbandinu og keyrði þá fram á Jodie Foster í Aðalstrætinu, ásamt tveimur börnum sínum og eldri konu.  Ég vissi ekki að hún væri hér.  Hví hefur engin sagt mér?  Ég fékk áfall, átti ekki beint von á að sjá eina af mínum uppáhaldsleikonum augliti til auglitis.

Hm... merkileg reynsla.


« Fyrri síða

Höfundur

Jenný Anna Baldursdóttir
Jenný Anna Baldursdóttir

Bara eins og ég kem fyrir af skepnunni.  Er með róttæka vinstri slagsíðu, með fagurgrænu ívafi ásamt femínískum töktum þegar við á.  Ég bít ekki.  Eða bít ég?  Það fer tvennum sögum af því. 

jennfo.baldursdttir@gmail.com

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband